Innlent

Flugmenn Icelandair samþykkja kjarasamning

Mynd/Teitur Jónasson
Flugmenn Icelandair samþykktu nýgerðan kjarasamning við flugfélagið í atkvæðagreiðslu sem lauk á miðnætti á miðvikudag. Áður höfðu þeir boðað til verkfalls í byrjun febrúar en ekkert varð af því eftir að samningaviðræður hófust á nýjan leik.

Fram kemur á vef Félags íslenskra atvinnuflugmanna að samningurinn var samþykktur með 70% atkvæða þeirra sem tóku afstöðu, en rétt tæplega 30 af hundraði höfnuðu samningnum.

Samningar höfðu verið lausir síðan um mánaðamótin janúar - febrúar 2009, en nýi samningurinn gildir fram í ársbyrjun 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×