Meta hvort útgerðin þoli fyrningu kvóta 12. mars 2010 06:00 Starfshópur sjávarútvegsráðherra horfir til allra átta við endurskoðun sína á fiskveiðistjórnunarlöggjöfinni.
Sérfræðingar Háskólans á Akureyri vinna nú að úttekt á skuldastöðu útgerðarfyrirtækja og er ætlað að meta í framhaldinu hvort þau þola fyrningu aflaheimilda. Til grundvallar liggja hagtölur sjávarútvegsins og trúnaðarupplýsingar úr bönkum. Verkið er unnið fyrir starfshóp sjávarútvegsráðherra um endurskoðun á lögum um fiskveiðistjórnun. Að sögn Hreiðars Þórs Valtýssonar, forstöðumanns Sjávarútvegsmiðstöðvar skólans, er nú beðið tiltekinna gagna frá Hagstofunni. Þegar þau hafa borist taki tiltölulega lítinn tíma að ljúka verkinu. Starfshópur ráðherra vinnur á grundvelli stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar en þar er meðal annars kveðið á um að leggja eigi grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi, með Landssamband íslenskra útvegsmanna í fararbroddi, hafa mótmælt þeim áformum harðlega og sagt þau ganga af greininni dauðri. Guðbjartur Hannesson, formaður starfshópsins, segir ekki standa til að koma fyrirtækjum í vandræði. Ekki eigi að raska fjárhagslegum grunni greinarinnar. „Við höfum alltaf lagt þetta þannig upp að við munum skoða þetta og endurmeta ef hlutirnir ganga ekki upp. Hins vegar held ég því fram að þetta sé hægt en við skulum bíða og sjá hvað kemur út úr þessu.“ Starfshópurinn hefur ýmsa anga fiskveiðistjórnunarinnar til skoðunar. Framkvæmd leiguviðskipta með kvóta verður skoðuð, sérstakur undirhópur fjallar um eignaréttarákvæði stjórnarskrárinnar og ennfremur er verið að máta hugmyndafræði um nýtingu annarra auðlinda við fiskveiðistjórnunina. Útgangspunktur er þó áframhaldandi aflamarkskerfi, ekki stendur til að meta kosti og galla sóknarkerfis. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Erlent Fleiri fréttir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Sjá meira