Þrotabú Baugs vill „miskabætur“ til baka vegna fjársvikamáls 12. mars 2010 12:50 Karl Georg Sigurbjörnsson að ræða við blaðamann í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Þrotabú Baugs hefur höfðað riftunarmál gegn lögfræðingnum Karli Georg Sigurbjörnssyni vegna starfa hans fyrir A Holding, dótturfélag Baugs. Fyrirtaka fór fram í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Samkvæmt heimildum Vísis fékk Karl Georg um tíu milljónir greiddar í nokkurskonar miskabætur eftir að hann var ákærður fyrir fjársvik á síðasta ári en því var haldið fram að hefði blekkt Sigurð Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðanda til að selja stofnfjárbréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar á 25 milljónir hvert í stað 45 milljóna. Karl Georg var svo sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum Vísis er litið á greiðsluna sem gjafagjörning af hálfu þrotabús Baugs og farið fram á riftun þess vegna. Rökin eru helst þau að Baugur hafi ekki haft neina skyldu til þess að greiða Karli Georg þessa upphæð. Sjálfur á Karl Georg að hafa farið fram á þennan pening sem miskabætur fyrir þær hremmingar sem hann taldi sig hafa lent í vegna stofnfjárkaupanna. Dómsmálið vakti gríðarlega athygli en það fór fram í febrúar á síðasta ári. Meðal þeirra sem báru vitni voru athafnamennirnir Pálmi Haraldsson og Magnús Ármann. Þeir sögðust báðir hafa litið á kaup sín á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar sem gott viðskiptatækifæri enda hafi sameining sjóðsins við aðra sparisjóði legið fyrir. Pálmi sagðist ekki hafa vitað af því að hann væri að kaupa bréfin af A Holding. Það voru Karl Georg ásamt Sigurði G. Guðjónssyni sem höfðu milligöngu um að kaupa stofnfjárhluti í Sparisjóði Hafnarfjarðar árið 2006 fyrir A Holding, dótturfélag Baugs. Félagið var staðsett í Lúxemborg og fóru kaupin í gegnum útibú þess í Sviss. Málinu var svo áfrýjað til Hæstaréttar í mars á síðasta ári.
Mest lesið Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Holskefla í kortunum Innlent „Þetta var óvenjuleg ræða“ Innlent Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Innlent Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Innlent Sprenging í Osló og stórt svæði girt af Erlent Rússland sé „pappírs tígur“ og Úkraínumenn geti unnið landið aftur Erlent Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Innlent „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Innlent Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Erlent Fleiri fréttir Áflog og miður farsæl eldamennska Verða bílveikari í rafbílum „Þetta var óvenjuleg ræða“ Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Holskefla í kortunum Bílslys í Laugardal „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Örlög hjartanna enn óráðin Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa Forsetahjónin á leið til Finnlands Benti á mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Mæla hiklaust með lyfinu á meðgöngu ef þörf þykir á Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Vara við svikapóstum frá Ríkisskattstjóra Dularfullir drónar og umdeildar kenningar um einhverfu og parasetamól Telja sig vita hverjir grímuklæddu mennirnir eru Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Sjá meira