Lífið

Topp # 6 í mottusöfnun - myndir

Guðmundur Karl Sigurdórsson (1. sæti), Tom Selleck  og Óskar Freyr Pétursson.
Guðmundur Karl Sigurdórsson (1. sæti), Tom Selleck og Óskar Freyr Pétursson.

Tæplega 500 karlar hafa nú skráð sig í einstaklingskeppni í mottuáskorun átaksins Karlar og krabbamein og 120 lið í hópakeppnina. Nú þegar hefur safnast yfir ein og hálf milljón í áheitum og hækkar sú upphæð með hverri mínútunni sem líður.

Fjölmargir karlar eru því að safna mottum um þessar mundir og má ætla að sjaldan eða aldrei hafi jafn margir verið að rækta efri vörina af jafn miklu kappi.

Rúnar Sigurðsson og Hulk Hogan. Svona á að gera þetta Rúnar!

Hægt er að leggja átakinu lið með ýmsum hætti en meðal annars er verið að óska eftir sjálfboðaliðum um land allt fyrir landssöfnunina nú um helgina - en áhugasamir geta farið á vefinn krabb.is og leitað sér nánari upplýsinga um það.

Sá sem hefur safnað mestum áheitum við lok fjórða keppnisdags er Guðmundur Karl Sigurdórsson á Selfossi.

Meðfylgjandi eru myndir af þeim körlum sem tróna í efstu 6 sætunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.