Stöðugur straumur fólks og stemning í Fljótshlíðinni 27. mars 2010 04:30 Nýi hraunfossinn í Hvannárgili. Tignarleg náttúruöflin láta ekki að sér hæða. Úr gosgígnum á Fimmvörðuhálsi rennur hraunelfur niður í Hvannárgil.Mynd/Jón Haukur STeingrímsson
Stöðugur straumur fólks hefur verið síðustu tvö kvöld austur í Fljótshlíð og upp á Fimmvörðuháls. Um helgina má búast við þungri umferð og jafnvel öngþveiti. Lögreglan segir að um þúsund manns hafi verið við Þórólfsfell í Fljótshlíð í gærkvöldi, en þaðan er mjög gott útsýni yfir til gosstöðvanna. Sveitarfélagið á staðnum hefur síðustu daga verið að útbúa betri aðstöðu við Þórólfsfell og brúa litla á svo fólksbílum sé fært að fjallinu. Yfir hundrað jeppar voru komnir lengra, alla leið inn að Emstrum þar sem vel sést yfir á Fimmvörðuháls. Þórsmörk verður hins vegar áfram lokuð allri umferð vélknúinna ökutækja, þar á meðal fjórhjóla og vélsleða. Hjálparsveitir verða til taks ef eitthvað fer úrskeiðis og lögreglan hefur mikinn viðbúnað, meðal annars á þjóðveginum og í Fljótshlíðinni. Þeir sem hyggja á gönguferð upp á Fimmvörðuháls til að komast í návígi við gosið eru hvattir til að fara vel búnir, í góðum skóm, hlýjum fötum og með kjarngott nesti til heils dags. Jarðfræðingar ráðleggja fólki að halda sig á hæðum og hólum og ekki dvelja í lægðum nema vindur sé nokkur.„Það eru eiturgös sem koma úr gígnum og þau eru ekkert þægileg. Þau geta bæði skaðað lungun til langframa og þau geta líka drepið menn,“ segir Ármann Höskuldsson jarðfræðingur, sem hefur fylgst náið með þróun gossins. Hann segir meginstraum eldhraunsins enn streyma úr gígnum í norðaustur niður í Hrunagil, en síðan á miðvikudag hefur hraunstraumurinn stíflast nokkrum sinnum og því leitað æ meir niður vestan megin, niður í Hvannárgil. Ferðafélagið Útivist hefur skipulagt hópferð frá Skógafossi upp á Fimmvörðuháls í dag. Lagt verður af stað klukkan ellefu, og reiknað er með tólf til fimmtán klukkustunda ferð. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira