Gnarr um Burns: Meira hjarta minna kjaftæði Erla Hlynsdóttir skrifar 25. október 2010 10:28
Jón Gnarr borgarstjóri sendi hvatningarorð til bandaríska borgarfulltrúans Joel Burns sem hélt tilfinningaþrungna ræðu um öldu sjálfsmorða samkynhneigðra pilta. Ræðuna hélt Burns á borgarstjórarfundi í heimabæ sínum, Fort Worth í Texas, fyrr í þessum mánuði og vakt heimsathygli. Á Twitter-síðu sinni gerir Burns kveðjuna frá Jóni að umtalsefni: „Fékk virkilega fallega orðsendingu frá borgarstjóra Reykjavíkur, Jóni Gnarr, eftir frétt á Stöð 2," segir Burns. Hann spyr einnig hvort lesendur sínir skilji íslensku og setur inn tengil á frétt Stöðvar 2 frá því á laugardagskvöldið þar sem fjallað er um ræðuna hans og viðbrögð við henni. Hægt er að horfa á fréttina með því að smella á sjónvarpstengilinn hér að ofan. Tekur að ofan fyrir Burns Jón nýtti sér einnig tæknina til að koma skoðun sinni á ræðu Burns til borgarbúa því Jón setti inn tengil ræðuna á Facebook-síðu sinni. Þar sagði hann einnig: „Falleg orð frá hugrökkum borgarfulltrúa. Í öllu þessu einelti, reiði, meðvirkni neikvæðni og kjaftæði er svona fólk að þora að vera einlægt. Tek ofan og hneigi mig djúpt. Meira hjarta minna kjaftæði!" Hafsteinn Hauksson fréttamaður tók ítarlegt útvarpsviðtal við Burns á laugardag um rússíbanann sem hófst eftir að hann flutti ræðuna, umburðarlyndið á Íslandi og hvort Bandaríkin séu búin undir samkynhneigðan forseta. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni með því að smella hér á Visir.is
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Fagna „heimkomu“ Baldurs eftir margra vikna fjarveru Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira