Innlent

Lýst eftir 18 ára gamalli stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Regínu Sif Marinósdóttur. Hún fór frá Landspítalanum við Hringbraut sl. mánudag og hefur ekki sést síðan.

Regína Sif er 18 ára gömul, um 170 cm á hæð, þéttvaxin, dökkhærð með sítt liðað hár. Regína Sif var klædd í svartar íþróttabuxur, dökka peysu og brúna öklaháa inniskó.

Þeir sem hafa orðið varir eða vita um ferðir Regínu Sifjar, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1130 eða 843 1170.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×