Gylfi: Skil ekki eftir naglaför í parketinu 14. ágúst 2010 11:15 „Það verður ekki erfitt að koma mér út þegar ákvörðun um það verður tekin,“ sagði Gylfi á Rás 1 í dag. Mynd/Anton Brink „
Auðvitað hef ég velt því fyrir mér," segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, aðspurður hvort hann hafi íhugað að segja sér embætti. Hann segir að það verði ekki erfitt að koma honum út þegar ákvörðun um það verði tekinn. Hann muni ekki skilja eftir naglaför í parketinu. Þetta kom fram í máli Gylfi í þættinum Vikulokin á Rás 1 í dag. Gylfi hefur legið undir miklu ámæli eftir að upplýst var að lögfræðiálit frá Lex lögmannsstofu um gengistryggð lán hafi verið sent úr Seðlabanka Íslands í viðskiptaráðuneytið fyrir ári síðan. Gylfi sagði að hann hefði ekki sóst eftir ráðherraembættinu á sínum tíma og þegar hann hefði tekið verkefnið að sér hafi hann haldið að það væri til þriggja mánaða. „Þannig að mér er ráðherrastarfið sjálft í sjálfu sér ekki fast í hendi en mér finnst mjög sárt að sitja undir áburði um að hafa farið með rangt mál í þinginu eða vísvitandi blekkt þingið. Aðalmálið í mínum huga er að draga fram sannleikann og þar tel ég mig hafa mjög gott mál í höndunum." Þá sagðist Gylfi ekki hafa tekið ákvörðun um að láta af embætti. „Hvort að ég verð áfram ráðherra eða ekki finnst mér skipta minna máli. Ég hef ekki tekið ákvörðun um að segja af mér en ég geri ekki heldur ráð fyrir því að vera í þessu starfi til æviloka. Þannig að það kemur nú væntanlega einhvern tímann af því að ég stíg upp úr því og þá verða ekki naglaför eftir mig í parketinu þegar ég verð dreginn út. Það verður ekki erfitt að koma mér út þegar ákvörðun um það verður tekin," sagði Gylfi.
Tengdar fréttir Segir Gylfa hafa logið „Þetta eru ekki nægjanlegar skýringar og við sjáum okkur ekki annað fært en að bera fram vantrauststillögu á Gylfa. Þegar farið er yfir það hvað hann sagði og hvenær þá sést að hann var ekki að segja satt,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar. 14. ágúst 2010 10:38 Ræddu gagnrýni á Gylfa Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ræddu saman í síma í kvöld um þá gagnrýni sem beinst 13. ágúst 2010 21:57 Traust Jóhönnu til Gylfa skilyrðum háð Forsætisráðherra ber enn traust til viðskiptaráðherra, en traust hennar er því skilyrði háð að hann geti gefið greinargóðar skýringar á ásökunum sem settar hafa verið fram á hendur honum. Þingmenn Hreyfingarinnar ætla að leggja fram vantrauststillögu á hendur viðskiptaráðherra ef hann segir ekki af sér. 13. ágúst 2010 18:52 Stjórnmálafræðingur: Gylfi vandræðalega tvísaga Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðingur segir, stöðu Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vera erfiða. Ráðherrann virðist vera „vandræðalega tvísaga", þótt auðvitað megi líta til aðstæðna á þeim tíma, sumarið 2009, til skýringar á athöfnum hans, en þá var meðal annars verið að fjalla um uppgjör gömlu bankanna. 14. ágúst 2010 09:50 Jóhanna vill fá svör frá Gylfa - Ráðherrar telja hann í vondum málum Forsætisráðherra mun ekki ræða við fjölmiðla um stöðu Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra fyrr en Gylfi sjálfur útskýrir mál sitt fyrir henni, samkvæmt upplýsingum úr stjórnarráðinu. 13. ágúst 2010 14:11 Gylfi Magnússon: Afsögn ekki rædd „Það er ekki minn skilningur heldur þvert á móti að starfsmenn ráðuneytisins hafi haldið frá mér upplýsingum eða blekkt mig. Ég var fyllilega upplýstur um það sem átti að upplýsa mig um," segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem ræddi við Fréttablaðið í gærkvöld. 14. ágúst 2010 09:40 Gylfi brunar í bæinn Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er á leiðinni í bæinn en hann hefur verið í sumarleyfi undanfarna daga og utan símasambands. 13. ágúst 2010 16:37 Skora á Gylfa að segja af sér Þingmenn Hreyfingarinnar skora á Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, að segja af sér. 13. ágúst 2010 09:05 Gylfi situr áfram í embætti Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra mun sitja áfram í embætti, segir Benedikt Stefánsson, aðstoðarmaður hans, í samtali við Vísi. 13. ágúst 2010 22:19 Hefði átt að vita meira um málaflokkinn Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur minnir á að ráðherra beri pólitíska ábyrgð á sínum málaflokki og því sem embættismenn undir honum vinna að. „Ef eitthvað fer úrskeiðis þá ber ráðherra ábyrgð gagnvart þinginu og verður að svara fyrir það,“ segir Birgir og nefnir sem dæmi að ef forveri Gylfa, Björgvin G. Sigurðsson, segðist ekki hafa vitað neitt í aðdraganda bankahrunsins, þá væri það engin afsökun. 13. ágúst 2010 03:15 Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Sjá meira
Segir Gylfa hafa logið „Þetta eru ekki nægjanlegar skýringar og við sjáum okkur ekki annað fært en að bera fram vantrauststillögu á Gylfa. Þegar farið er yfir það hvað hann sagði og hvenær þá sést að hann var ekki að segja satt,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar. 14. ágúst 2010 10:38
Ræddu gagnrýni á Gylfa Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ræddu saman í síma í kvöld um þá gagnrýni sem beinst 13. ágúst 2010 21:57
Traust Jóhönnu til Gylfa skilyrðum háð Forsætisráðherra ber enn traust til viðskiptaráðherra, en traust hennar er því skilyrði háð að hann geti gefið greinargóðar skýringar á ásökunum sem settar hafa verið fram á hendur honum. Þingmenn Hreyfingarinnar ætla að leggja fram vantrauststillögu á hendur viðskiptaráðherra ef hann segir ekki af sér. 13. ágúst 2010 18:52
Stjórnmálafræðingur: Gylfi vandræðalega tvísaga Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðingur segir, stöðu Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vera erfiða. Ráðherrann virðist vera „vandræðalega tvísaga", þótt auðvitað megi líta til aðstæðna á þeim tíma, sumarið 2009, til skýringar á athöfnum hans, en þá var meðal annars verið að fjalla um uppgjör gömlu bankanna. 14. ágúst 2010 09:50
Jóhanna vill fá svör frá Gylfa - Ráðherrar telja hann í vondum málum Forsætisráðherra mun ekki ræða við fjölmiðla um stöðu Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra fyrr en Gylfi sjálfur útskýrir mál sitt fyrir henni, samkvæmt upplýsingum úr stjórnarráðinu. 13. ágúst 2010 14:11
Gylfi Magnússon: Afsögn ekki rædd „Það er ekki minn skilningur heldur þvert á móti að starfsmenn ráðuneytisins hafi haldið frá mér upplýsingum eða blekkt mig. Ég var fyllilega upplýstur um það sem átti að upplýsa mig um," segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem ræddi við Fréttablaðið í gærkvöld. 14. ágúst 2010 09:40
Gylfi brunar í bæinn Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er á leiðinni í bæinn en hann hefur verið í sumarleyfi undanfarna daga og utan símasambands. 13. ágúst 2010 16:37
Skora á Gylfa að segja af sér Þingmenn Hreyfingarinnar skora á Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, að segja af sér. 13. ágúst 2010 09:05
Gylfi situr áfram í embætti Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra mun sitja áfram í embætti, segir Benedikt Stefánsson, aðstoðarmaður hans, í samtali við Vísi. 13. ágúst 2010 22:19
Hefði átt að vita meira um málaflokkinn Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur minnir á að ráðherra beri pólitíska ábyrgð á sínum málaflokki og því sem embættismenn undir honum vinna að. „Ef eitthvað fer úrskeiðis þá ber ráðherra ábyrgð gagnvart þinginu og verður að svara fyrir það,“ segir Birgir og nefnir sem dæmi að ef forveri Gylfa, Björgvin G. Sigurðsson, segðist ekki hafa vitað neitt í aðdraganda bankahrunsins, þá væri það engin afsökun. 13. ágúst 2010 03:15