Ákvörðunin gæti tafist 11. mars 2010 03:15 Atkvæðagreiðsla á þýska þinginu Angela Merkel kanslari og aðrir þingmenn í kös við kjörkassann. nordicphotos/AFP
Ný ákvæði í þýskum lögum gætu orðið til þess að þýska þjóðþingið fái ekki nægan tíma til að taka afstöðu til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður Evrópusambandsins við Ísland áður en málið verður tekið fyrir á næsta fundi Leiðtogaráðs Evrópusambandsins dagana 25. og 26. mars, eða eftir aðeins hálfan mánuð. Þetta verður í fyrsta sinn sem reynir á þetta ákvæði, sem kveður á um að ráðherrar í ríkisstjórn Þýskalands verði að hafa samráð við þingið áður en þeir taka þátt í ákvörðunum á vettvangi ráðherraráðs Evrópusambandsins. Samkvæmt þingsköpum þýska þingsins er hægt að afgreiða slík mál á einum þingfundi. Heimilt er þó að vísa máli til nefndar, ef einn þingflokkur eða fimm prósent þingmanna fara fram á það. Málið kæmi þá til kasta Evrópunefndar þýska þingsins, sem gæti sömuleiðis afgreitt málið á einum fundi. Líklega myndu þó fleiri nefndir vilja hafa aðkomu að málinu, svo sem utanríkismálanefnd, og það gæti flækt afgreiðslu málsins og tafið hana. Lögin gefa þó kost á því, ef vilji er fyrir hendi, að afgreiða málið á sameiginlegum fundi allra þeirra nefnda sem vilja taka þátt í umræðunum. Óvissan um afgreiðslu þingsins stafar fyrst og fremst af því að þetta verður í fyrsta sinn sem reynir á fyrrnefnt ákvæði í þýskum lögum um samráð ríkisstjórnar og þings í málefnum Evrópusambandsins. Þingið hefur að vísu alla möguleika til að afgreiða málið hratt, en hvorki í utanríkisráðuneyti Þýskalands né hjá þýska þjóðþinginu var í gær hægt að fá staðfestingu á því að þeir möguleikar verði nýttir. Það verði einfaldlega að koma í ljós, hvernig framkvæmdin verður í þetta sinn. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins bar þetta mál á góma í síðustu viku á fundi Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra með Guido Westerwelle, hinum þýska starfsbróður hans í Berlín. Á þeim fundi fagnaði Westerwelle skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Ísland, þar sem mælt var með því að aðildarviðræður hefjist sem fyrst. Sendinefnd frá þýska þinginu verður á Íslandi í dag og á morgun að ræða við ráðherra og flokksleiðtoga. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Fleiri fréttir Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Sjá meira