Innlent

Ók í öfuga átt á Skólavörðustíg

Hér kem ég Ökumaður þessa bíls lét ekki einstefnumerki hindra för sína.
Fréttablaðið/Anton
Hér kem ég Ökumaður þessa bíls lét ekki einstefnumerki hindra för sína. Fréttablaðið/Anton
Vegfarendur í miðborginni ráku upp stór augu um tvöleytið í gær þegar bíl var ekið frá Laugavegi upp Skólavörðustíg gegn einstefnuumferð sem þar er. Ungur ökumaður bílsins þurfti öðru hvoru að víkja fyrir þeim sem komu akandi niður götuna. Hann lét það ekki slá sig út af laginu heldur hélt ótrauður áfram veginn, meðborgurum sínum til nokkurrar furðu.

Ekkert óhapp varð við þetta háttalag mannsins sem slapp fyrir horn ofar á Skólavörðustíg. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×