Ástsjúkur eiturbyrlari Óli Tynes skrifar 8. júlí 2010 15:08
Sextán ára indverskur drengur hefur verið handtekinn fyrir að hella skordýraeitri í vatnsgeymi skóla síns til þess að hefna sín á nemendum sem honum fannst hafa niðurlægt sig. Blaðið Times of India segir að drengnum hafi verið vikið tímabundið úr skólanum fyrir að ganga þar með grasið í skónum á eftir telpu sem hann nauðaði í að giftast sér. Hann hafði ekki sinnt áminningum og þegar hann reyndi að klína fagurrauðum sinnóberjalit á enni hennar fyrir allra augum var hann rekinn. Indverskar konur bera slíkan lit á enni sér til að sýna að þær séu giftar. Drengnum fannst hann hafa verið niðurlægður. Og þegar telpan skráði hjónaband sitt á mánudaginn með manni sem fjölskyldan hafði valið handa henni, lét hann til skarar skríða. Daginn eftir laumaðist hann inn í skólann og hellti skordýraeitrinu í vatnsgeyminn. Þar skildi hann svo eftir bréf í nafni föður telpunnar, þar sem sagði að eiturbrasið væri hefnd fyrir að skólinn hefði ekki verndað dótturina nógu vel. Það komst þó strax upp um kauða og lögreglan tók hann í sína vörslu. Sem betur fór drakk aðeins einn nemandi vatn áður en þetta kom upp. Hann veiktist en er á batavegi.
Mest lesið Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Sjá meira