Flokkarnir hafa fengið 130 milljónir í styrki frá borginni 9. febrúar 2010 05:00 33,6 milljónir voru settar úr borgarsjóði til að styrkja stjórnmálaflokkana hvort áranna 2008 og 2009 en 29,5 milljónir á þessu ári. Fréttablaðið/Stefán
Styrkir Reykjavíkurborgar til stjórnmálaflokkanna, sem eiga kjörna fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur, nema samtals 129,5 milljónum króna á árunum 2007-2010. Styrkirnir jafngilda því að flokkarnir hafi á kjörtímabilinu fengið greiddar 2.000 krónur fyrir hvert atkvæði sem þeir hlutu í sveitarstjórnarkosningunum árið 2006. Þessir styrkir eru veittir á grundvelli laga frá 2006 um fjármál stjórnmálasamtaka. Samkvæmt 5. grein þeirra er sveitarstjórnum með fleiri en 500 íbúa skylt að styrkja stjórnmálasamtök, sem hafa fengið að minnsta kosti einn mann kjörinn í sveitarstjórnina eða hlotið 5 prósent atkvæða eða meira í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Hverri sveitarstjórn er í sjálfsvald sett hve háar fjárhæðir eru veittar í þessa styrki. Hins vegar er skylt að deila heildarfjárhæðinni niður á flokkana í hlutfalli við atkvæðamagn þeirra. Samkvæmt svari við fyrirspurn, sem Fréttablaðinu hefur borist frá skrifstofu borgarstjóra, hafa 33,6 milljónir króna verið settar í styrki til flokka borgarfulltrúanna hvorttveggja árið 2008 og 2009. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010 var hins vegar ákveðið að lækka styrkina um 12 prósent og greiða 29,5 milljónir króna til flokkanna í ár. Árið 2007 var fjárhæðin 32,7 milljónir. Það ár tóku gildi lögin um fjármál stjórnmálaflokka og jukust framlögin verulega í framhaldi af því en voru á bilinu 11,5-13,9 milljónir á ári frá 2003-2006. Í samræmi við kjörfylgi hefur Sjálfstæðisflokkurinn fengið hæstu styrkina, 42,87 prósent af heildarfjárhæðinni, samtals 55,5 milljónir króna á tímabilinu 2008-2010. Hlutur Samfylkingarinnar er 27,35 prósent, sem jafngildir 35,4 milljónum, í hlut VG koma 13,47 prósent, eða 17,4 milljónir, F-listinn 10,06 prósent, eða 13 milljónir, en Framsóknarflokkurinn 6,25 prósent eða alls 8 milljónir króna. Í Fréttablaðinu á laugardag kom fram að stærstu sveitarfélögin í nágrenni Reykjavíkur styrktu flokkana um samtals rúmlega 9,2 milljónir króna á árinu 2008. Það ár styrkti Akureyrarbær flokkana um 3 milljónir króna.- pg
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Sjá meira