Aðsóknarmet slegið á RIFF - Yfir 20 þúsund manns sótt hátíðina 2. október 2010 15:39 Úr myndinni Sonur Babýlóníu eða Son of Babylon.
Aðsókn að Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur farið fram úr væntingum aðstandenda hátíðarinnar og fyrir liggur að hátíðin í ár verður sú aðsóknarmesta frá upphafi. Yfir 20 þúsund manns hafa sótt hátíðina og er þar með slegið aðsóknarmet hátíðarinnar 2009. Í tilkynningu segir að það megi líta á það sem staðfestingu þess að kvikmyndahátíðin RIFF fer vaxandi með hverju árinu. Kvikmyndahátíðin hefur fengið athygli erlendis frá en sjónvarpsstöðin ARTE hefur fylgst með hátíðinni síðustu daga. Klukkan 20 í kvöld fer fram verðlaunaafhending RIFF 2010 í aðalsal Háskólabíós. Þá verða afhent aðalverðlaun hátíðarinnar fyrir bestu mynd keppnisflokksins sem nefnist Vitranir. Auk þess verða veitt áhorfendaverðlaun og Umhverfisverðlaun fyrir bestu myndina í þeim flokki. Við sama tækifæri verður íslenska myndin Brim frumsýnd í aðalsal Háskólabíós en að minnsta kosti þúsund manns hafa boðað komu sína. Að venju verða aðsóknarmestu myndirnar endursýndar nú um helgina, en lokadagur hátíðarinnar er á sunnudaginn. Á meðal vinsælustu myndanna sem sýndar verða á sunnudaginn eru When The Dragon Swallowed The Sun, The Most Dangerous Man In America, The Edge og Flowers Of Evil. Ítarlegar upplýsingar um sýningar á sunnudaginn eru aðgengilegar á riff.is.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira