Víkingur Heiðar hlýtur bjartsýnisverðlaunin 5. janúar 2010 17:04 Víkingur Heiðar. Mynd/GVA
Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2009. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin í Iðnó í dag og afhenti Víkingi Heiðari áletraðan verðlaunagrip úr áli og verðlaunafé að upphæð 1 milljón króna. Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona, fékk viðurkenninguna í fyrra. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 1981 og voru þá kennd við upphafsmann sinn, danska athafnamanninn Peter Bröste. Þegar hann dró sig í hlé skoraði hann á íslensk fyrirtæki að halda verðlaununum við og hefur Alcan á Íslandi verið bakhjarl þeirra frá árinu 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari þeirra. Víkingur Heiðar lauk mastersprófi frá Juilliard listaháskólanum í New York vorið 2008. Í Juilliard hlaut hann árið 2006 Carl Roeder-verðlaunin fyrir píanóleik og á lokaári sínu sigraði hann í einleikarakeppni á vegum skólans sem veitti honum rétt til að flytja píanókonsert með hljómsveit skólans í tónleikasal New York Fílharmóníunnar. Fram kemur í tilkynningu að hann hlaut fyrstu tilsögn á píanó fjögurra ára að aldri hjá móður sinni, Svönu Víkingsdóttur, en stundaði síðar nám við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Tónlistarskólann í Reykjavík, þaðan sem hann lauk einleikaraprófi árið 2001. Hann hefur hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin tvisvar sinnum: árið 2004 í flokknum „bjartasta vonin“ og árið 2006 í flokknum „flytjandi ársins“, en hann er yngstur allra sem hlotið hefur þau verðlaun. Hann hefur komið fram á fjölda tónleika víða um heim, meðal annars í Bandaríkjunum, Kína, Kanada, Lettlandi, Rúmeníu, Ítalíu, Belgíu, Spáni og Frakklandi, auk fjölda tónleika á Íslandi. Dómnefnd verðlaunanna skipa frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, sem er formaður nefndarinnar, Rannveig Rist, Sveinn Einarsson og Örnólfur Thorsson.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira