Innlent

Kannar hvort biðin hafi lengst

Álfheiður 
Ingadóttir
Álfheiður Ingadóttir

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra ætlar að kanna hvort bið fólks sem sjúkratryggt er hér á landi eftir frjósemismeðferð hafi lengst vegna aukinnar ásóknar útlendinga í þjónustuna hér á landi.

Íslenska ríkið er með samning við læknastofuna Art Medica um frjósemismeðferðir. Á síðasta ári fengu tæplega 400 íslensk pör meðferð sem ríkið greiddi fyrir að hluta. Til viðbótar fengu um 150 pör meðferð sem þau greiddu fyrir að fullu án aðkomu ríkisins. Af þeim fjölda var um þriðjungur útlendingar sem komu sérstaklega hingað til lands til að sækja sér þessa þjónustu.

Álfheiður segir lykilatriði hvort þjónusta Art Medica við þá sem ekki falli undir samninginn við ríkið lengi biðtíma þeirra sem eigi rétt á niðurgreiðslu frá ríkinu. Það verði kannað á næstunni.

Álfheiður hefur gagnrýnt áform um uppbyggingu einkarekins sjúkrahúss á Reykjanesi. Hún segir reginmun á því að bjóða erlendum ríkisborgurum að nýta sér umframgetu í íslenska heilbrigðiskerfinu og að reisa sérstaklega spítala. Þar með sé verið að koma upp tvöföldu kerfi. Þá sé óásættanlegt að ríkið eigi að kosta endurbætur á sjúkrahúsinu eins og áformað hafi verið.

- bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×