Hraunjaðarinn í Hrunagili á sama stað og fyrir helgi 29. mars 2010 18:50 Eldgosið gæti staðið í nokkrar vikur. Mynd/ Vilhelm.
Þótt fyrstu merki sjáist nú um að kraftur eldgossins á Fimmvörðuhálsi fari þverrandi telja vísindamenn að það geti enn staðið í nokkrar vikur. Hraunfossarnir skiptast nú á um að renna ýmist niður Hrunagil eða Hvannárgil en mesta spennan er um hvort hrauneðjan muni síðan ná niður á eyrarnar í Þórsmörk.Eyjafjallajökull er farinn að síga á ný og dregið hefur úr gosvirkninni um 20-25 prósent á síðustu tveimur dögum, að sögn Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings, sem telur að gosið geti þó enn lifað í einhverjar vikur.Stórfenglegir hraunfossar sjást ýmist falla niður í Hrunagil eða Hvannárgil, til norðurs frá eldstöðinni, en bæði gilin eru á Goðalandi og sameinast Krossáraurum í Þórsmörk. Bæði eru gilin löng og hrikaleg en Haraldur Sigurðsson telur líklegra að hraunrásin nái niður á eyrarnar við Krossá um Hrunagil fremur en Hvannárgil, en hér horfum við einmitt inn að gosstöðinni í dag upp eftir Hvannárgili.Leið okkar liggur hins vegar inn í Hrunagil til að kanna hversu laangt hraunið er komið á leið sinni niður á sléttlendið. Rjúkandi ár eru skýr merki þess að við séum að verða heitir. Þegar vatnið er snert reynist það brennandi heitt, sennilega 60-70 stiga heitt, þar sem við stöndum um 300 metra frá hraunjaðrinum.Við fikrum okkur varlega áfram og sjáum reglulega gjósa upp mikla bólstra innar í gilinu en þar er greinilega nýtt hraun að renna ofan á fyrsta hrauninu sem kom þarna niður á fyrstu dögum gossins. Þarna sjáum við svo hrauntunguna og það vekur athygli okkar að hún er á sama stað og síðastliðinn föstudag. Hraunið hefur ekkert fikrað sig nær Þórsmörk yfir helgina.Þröng hamraþil virðist stífla harunið þarna og það er eins og það komist ekki mikið lengra en þar fyrir innan er það svo að hlaðast upp. Hérna er hraunið búið að renna um það bil tvo og hálfan kílómetra frá gígnum og á enn eftir aðra eins vegalengd niður að Krossá.Neðar víkkar Hrunagil hins vegar og þar fær hraunið mun meira rými til að breiða úr sér. Okkur virðist því sem hraunrennslið þurfi að verða ansi mikið og langvarandi eigi hraunið að ná alla leið niður í Þórsmörk.
Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira