Innlent

Icelandair stefnir á flug klukkan 16.00 í dag

Icelandair stefnir að því að hefja flug klukkan 16.00 í dag og hvetur farþega til að mæta tveimur tímum fyrr í Leifsstöð.

Í tilkynningu frá Icelandair segir: "Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir alþingi frumvarp til laga um bann við verkfalli Flugvirkjafélags Íslands, og jafnframt tilkynnt að frumvarpið verði lagt fyrir alþingi strax í dag.

Í framhaldi af því hefur Icelandair ákveðið að stefna að því að hefja flug síðdegis í dag um klukkan 16.00, þó endanlegar ákvarðanir um það verði ekki teknar fyrr en Alþingi hefur lokið meðferð sinni. Um tvö þúsund farþegar bíða nú eftir flugi og Icelandair leggur áherslu á að hefja starfsemi eins fljótt og unnt er.

Farþegar eru hvattir til þess að mæta til flugs tveimur klukkustundum fyrir áætlaðan brottfarartíma."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×