Innlent

Um 200 manns mótmæla á Austurvelli

Tunnumótmælin frá því á mánudaginn.
Tunnumótmælin frá því á mánudaginn. Mynd Anton Brink

Um það bil 200 mótmælendur eru staddir á Austurvelli í tilefni þess að tvö ár eru liðin síðan Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hélt ræðu sína um hrunið sem er stundum kölluð: Guð blessi Ísland-ræðan.

Mótmælendur lemja á tunnur og búsáhöld. Að sögn varðstjóra lögreglunnar er ekki mikill viðbúnaður vegna mótmælanna enda með friðsamlegasta móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×