Girtu fyrir bein átök við Alþingishúsið 6. október 2010 06:00 Fjölgun lögreglumanna á vakt, fleiri lögreglubílar í notkun og ýmislegt fleira hefur í för með sér mikinn kostnaðarauka fyrir lögregluna, þegar mótmæli eiga sér stað. „
Þetta var eitt af stærstu verkefnunum sem við höfum tekist á við og það gekk bara býsna vel.“Þetta segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, um aðgerðir lögreglu vegna hinna fjölmennu mótmæla við Alþingishúsið í fyrrakvöld. „Ég get ekki nákvæmlega skotið á þann aukakostnað lögreglu sem slík mótmæli hafa í för með sér, en kostnaðurinn við mótmælin í fyrrakvöld er að minnsta kosti þrjár til fjórar milljónir,“ segir Stefán. Hann segir hægt að miða við heildarkostnað búsáhaldabyltingarinnar í janúar 2009. Heildarkostnaður við hana hafi numið vel yfir 50 milljónum króna. „Dýrustu kvöldin voru jafnvel að hlaupa á milljónum,“ útskýrir Stefán. Hann segir að aukið sé við fjölda lögreglumanna á vakt og menn í rannsóknar- og tæknideildum séu lengur á vakt þannig að þeir séu tiltækir þurfi á að halda. Þetta fái menn greitt í aukavinnu. Í gær hafði á annað hundrað lögreglumanna komið að mótmælunum, þar af um tuttugu úr sérsveit ríkislögreglustjóra. „Girðingin sem sett var í kringum Alþingishúsið sannaði gildi sitt við þessar aðstæður og hreinlega kom í veg fyrir bein átök við mótmælendur. Þau atvik þar sem lögregla var í beinum tengslum við ólátabelgina í hópnum voru mjög fá og enduðu farsællega. Það er þessari girðingu að þakka.“ Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóri lögðu fram fjármuni til smíði girðingarinnar í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar. Stefán segir hana ekki einungis til að auka öryggi lögreglumanna heldur annarra á svæðinu. „Auk hennar var bætt við öryggisbúnað lögreglumanna,“ bætir hann við. Spurður um notkun lögreglumanna á gasgrímum frá 1950 segir Stefán að slík eintök sé vissulega enn að finna í búnaði lögreglumanna, sem og gamla hjálma. Þrír lögreglumenn meiddust í mótmælunum í fyrrakvöld, að sögn Stefáns. Í öllum tilvikum var einhverju kastað í þá, þar með talið grjóti og flöskum. Spurður hvort lögreglan hafi mannafla, fjármuni og þanþol í aðra búsáhaldabyltingu segir Stefán sína menn tilbúna í það sem koma kunni. „Við tökumst á við þetta verkefni, undirbúum það vel og tökum á því af þeirri alvöru sem því sæmir,“ segir Stefán. „Það ber árangur.“jss@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira