Lesblindir ánægðir með Snilldarlausnir Marel Erla Hlynsdóttir skrifar 6. október 2010 11:05
Snævar Ívarsson, starfsmaður Félags lesblindra á Íslandi, segir það sérstakt fagnaðarefni fyrir lesblinda að hugmyndum í samkeppnina Snilldarlausnir Marel skuli skilað inn á myndbandi. „Það vakti strax áhuga minn að þeir biðja um að fá hugmyndirnar á myndbandi og hvað þetta verkefni er því aðgengilegt fyrir okkar skjólstæðinga, lesblinda," segir hann. Snilldarlausnir Marel er hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna og er haldin í annað sinn í ár. Keppnin hófst á föstudag og þurfa nemendur að útbúa myndband fyrir 11. október. Snævar segir það há lesblindum hversu algengt sé að hugmyndum og umsóknum þurfi að skila inn skriflega. Það fyrirkomulag er afar hamlandi fyrir lesblinda sem eiga þá erfitt með að koma hugmyndum sínum á framfæri. Hann segir stjórn Félags lesblindra á Íslandi því fagna þessu fyrirkomulagi Snilldarlausna Marel sérstaklega. Allir í stjórninni lesblindir Sem dæmi um hömlur lesblindra nefnir hann aðgang Félags lesblindra á Íslandi að styrkjum. „Yfirleitt þarf að fylla út umsóknir skriflega en allir í stjórninni eru lesblindir," segir hann. Félagið fær enga ríkisstyrki og því þurfa stjórnarmenn að sækja um styrki víða til að halda félaginu gangandi. Snævar segist hafa óskað eftir því að fá frekar að hitta úthlutunarnefndir og kynna þeim starfsemi félagsins, eða hreinlega senda myndband, en því verið hafnað. Hann hefur því reynt á eigin skinni hversu heftandi skriflega umsóknarferlið er fyrir lesblinda. Verkefni þátttakenda í Snilldarlausnum þetta árið er að koma með hugmyndir um hvernig hægt er að nýta, breyta eða auka notagildi pappakassa. Að því búnu er hugmyndin tekin upp á myndband og tengill á það sendur dómnefnd.Hugsa út fyrir PAPPAkassann Peningaverðlaun verða veitt fyrir bestu hugmyndina, frumlegustu hugmyndina, og besta myndbandið en þau verða veitt í Alþjóðlegu athafnavikunni sem fram fer 15. til 21. nóvember. Þátttaka er opin öllum framhaldsskólanemum á landinu. Stefán Þór Helgason, verkefnastjóri Snilldarlausna, hvetur þá eindregið til að hugsa út fyrir PAPPAkassann. Hugmyndasamkeppnin Snilldarlausnir Marel var haldin í fyrsta sinn í fyrra en þá var hluturinn herðatré. Fjölmargar tillögur bárust í keppnina og var Snilldarlausnin á síðasta ári gítarstandur sem búinn var til úr herðatrjám. Myndbandið með þeirri hugmynd má sjá með því að smella hér. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Snilldarlausna Marel.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira