Innlent

Lesblindir ánægðir með Snilldarlausnir Marel

Erla Hlynsdóttir skrifar
Snævar Ívarsson, starfsmaður Félags lesblindra á Íslandi, segir það sérstakt fagnaðarefni fyrir lesblinda að hugmyndum í samkeppnina Snilldarlausnir Marel skuli skilað inn á myndbandi. „Það vakti strax áhuga minn að þeir biðja um að fá hugmyndirnar á myndbandi og hvað þetta verkefni er því aðgengilegt fyrir okkar skjólstæðinga, lesblinda," segir hann.

Snilldarlausnir Marel er hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna og er haldin í annað sinn í ár. Keppnin hófst á föstudag og þurfa nemendur að útbúa myndband fyrir 11. október.

Snævar segir það há lesblindum hversu algengt sé að hugmyndum og umsóknum þurfi að skila inn skriflega. Það fyrirkomulag er afar hamlandi fyrir lesblinda sem eiga þá erfitt með að koma hugmyndum sínum á framfæri. Hann segir stjórn Félags lesblindra á Íslandi því fagna þessu fyrirkomulagi Snilldarlausna Marel sérstaklega.



Allir í stjórninni lesblindir


Sem dæmi um hömlur lesblindra nefnir hann aðgang Félags lesblindra á Íslandi að styrkjum. „Yfirleitt þarf að fylla út umsóknir skriflega en allir í stjórninni eru lesblindir," segir hann. Félagið fær enga ríkisstyrki og því þurfa stjórnarmenn að sækja um styrki víða til að halda félaginu gangandi. Snævar segist hafa óskað eftir því að fá frekar að hitta úthlutunarnefndir og kynna þeim starfsemi félagsins, eða hreinlega senda myndband, en því verið hafnað. Hann hefur því reynt á eigin skinni hversu heftandi skriflega umsóknarferlið er fyrir lesblinda.

Verkefni þátttakenda í Snilldarlausnum þetta árið er að koma með hugmyndir um hvernig hægt er að nýta, breyta eða auka notagildi pappakassa. Að því búnu er hugmyndin tekin upp á myndband og tengill á það sendur dómnefnd.

Hugsa út fyrir PAPPAkassann



Peningaverðlaun verða veitt fyrir bestu hugmyndina, frumlegustu hugmyndina, og besta myndbandið en þau verða veitt í Alþjóðlegu athafnavikunni sem fram fer 15. til 21. nóvember.

Þátttaka er opin öllum framhaldsskólanemum á landinu. Stefán Þór Helgason, verkefnastjóri Snilldarlausna, hvetur þá eindregið til að hugsa út fyrir PAPPAkassann.

Hugmyndasamkeppnin Snilldarlausnir Marel var haldin í fyrsta sinn í fyrra en þá var hluturinn herðatré. Fjölmargar tillögur bárust í keppnina og var Snilldarlausnin á síðasta ári gítarstandur sem búinn var til úr herðatrjám. Myndbandið með þeirri hugmynd má sjá með því að smella hér.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Snilldarlausna Marel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×