Innlent

Barnaheill mótmælir skerðingu fæðingarorlofs

Barnaheill - Save the Children á Íslandi mótmæla hugmyndum, sem fram koma í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011, um niðurskurð á fjárframlögum til Fæðingarorlofssjóðs sem og um styttingu fæðingarorlofsins. Slíkar hugmyndir vinna gegn markmiði laganna sem er meðal annars að tryggja barni samvistir við báða foreldra og brjóta gegn ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Barnaheill hefur sent frá sér tilkynningu þar sem niðurskurðinum er mótmælt harðlega. Þar segir að Íslandi hefur lengst af rekið lestina í fæðingarorlofsmálum, samanborið við hin Norðurlöndin, sérstaklega þegar horft er til feðraorlofs og þess að ekki var tekin upp tekjutenging í fæðingarorlofsgreiðslum fyrr en með núgildandi lögum frá árinu 2000. Einnig er orlofsréttur hér styttri en á öllum hinum Norðurlöndunum. Frekari stytting samræmist ekki tilmælum heilbrigðisyfirvalda um brjóstagjöf og umönnun ungbarna. Barnaheill - Save the Children á Íslandi telja því að með boðaðri breytingu á fyrirkomulagi fæðingarorlofs sé vegið bæði að réttindum barna og foreldra.

Frá því að efnahagslegt hrun varð á Íslandi fyrir réttum tveimur árum, hafa greiðslur í fæðingarorlofi verið skertar í þrígang; fyrst um áramót 2008-2009 með lækkun tekjutengingar úr rúmum 535 þúsundum í 400 þúsund krónur, 1. júlí 2009 úr 400 þúsundum í 350 þúsunum og um áramót 2009-2010 úr 350 þúsundum í 300 þúsund krónur. Allar líkur eru á því að frekari niðurskurður á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði muni hafa áhrif á þátttöku feðra í umönnun barna sinna á fyrstu mánuðum þeirra.. Starfsmenn Fæðingarorlofssjóðs verða í auknu mæli varir við að feður fresti töku feðraorlofs eða stytti tímann þar sem þeir þora ekki eða hafa ekki efni á því að hverfa af vinnumarkaði til að sinna ungviði sínu.

Allar hugmyndir um að skerða og stytta fæðingarorlofstímann vega að réttindum barna sem kveðið er á um í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Ísland hefur staðfest, að mati Barnaheilla. Þannig segir í 3. grein að allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn eigi að byggja á því sem börnum er fyrir bestu. Í 5. greininni segir ennfremur að aðildarríki eigi að virða ábyrgð, réttindi og skyldur foreldra til að veita börnum sínum leiðsögn og stuðning í samræmi við þroska þeirra. Í 18. greininni er minnt á að foreldrar bera sameiginlega ábyrgð á uppeldi barna sinna og að stjórnvöldum ber að veita foreldrum viðeigandi aðstoð við að rækja uppeldisskyldur sínar.

„Það er óumdeilt að þau tilfinningatengsl sem myndast milli barns og foreldra þess á fyrsta ári barnsins, eru grunnurinn að öðrum tilfinninga- og félagstengslum síðar á ævinni. Barn sem getur myndað góð og heilbrigð tengsl er með sterkari sjálfsmynd og mun ganga betur í leik og starfi. Því er afar mikilvægt fyrir þroska barnsins að það fái að njóta sem mestra samvista við foreldra sína á fyrsta æviári þess," segir í tilkynningu Barnaheilla.


Tengdar fréttir

Ljósmæður segja ríkið hafi sóað langri jafnréttisþróun

Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands mótmælir „þeim ömurlegu" sængurgjöfum sem ríkið býður foreldrum. Félagið afþakkar þær fyrir hönd foreldranna. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að Íslendingar hafi stysta fæðingarorlof allra Norðurlandabúa. Ríkið hafi sóað áralangri jafnréttisþróun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×