Slagurinn tapast eða vinnst í borgunum Kína 6. október 2010 06:00 Ólafur Ragnar Grímsson Forseti Íslands segir Reykjavík geta orðið fyrstu borg í heimi til að verða 100 prósent visthæf, með því að húshitun byggi á jarðvarma og bílar aki um á vistvænu innlendu eldsneyti.Fréttablaðið/Stefán
Með fyrri orkuskiptum þar sem hætt var að nota olíu og kol til húshitunar og jarðvarmi tók við hafa Íslendingar sýnt heiminum að slíkar umbreytingar eru færar, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á alþjóðlegu ráðstefnunni Driving Sustainability sem fram fór í Reykjvík í september. Hann segir raunhæfan möguleika á að Reykjavík gæti með orkuskiptum í samgöngum orðið fyrsta borg í heimi til þess að reiða sig að fullu á visthæfa orku. Ráðstefnan er árviss og á henni fjallað um hvernig hægt er að koma á visthæfum samgöngum, hér á landi og í heiminum öllum. Ráðstefnuna sótti fjöldi fyrirlesara víðs vegar að úr heiminum, fulltrúar bílaframleiðenda, orkufyrirtækja, stjórnmálamenn og forsvarsmenn sprotafyrirtækja. Ólafur kvaðst þess fullviss að drifkraftur breytinga í samgöngum kæmi til með að eiga sér stað á vettvangi borgríkjanna, en þar kæmu í ljós vandamál tengd umferð og vatnsskorti. „Slagurinn verður unninn, eða tapast, í borgunum,“ sagði hann í setningarræðu sinni á ráðstefnunni. „Kína ætlar sér að taka í notkun eina milljón bíla sem nota visthæfa orku innan fárra ára,“ benti Ólafur Ragnar á í ræðu sinni, en hann var við setningu ráðstefnunnar nýkominn frá Kína. Hann hafði í ræðu sinni eftir varaforseta Kína, sem hann hafði nýverið hitt og sagði líklegastan til að taka við forsetaembættinu, að Kína liti nú á Ísland sem sinn helsta samstarfsaðila í virkjun jarðvarma í Kína. Ólafur sagði að á öllum stigum stjórnmála og fræða í Kína væri markvisst unnið að því að umbreyta landinu frá því að vera steinefnaeldsneytisland yfir í að verða á næstu tuttugu árum í fararbroddi helstu iðnríkja í notkun á visthæfri orku. „Breyting á sér stað frá borg til borgar, héraði til héraðs,“ sagði Ólafur Ragnar og kvað horft til þess að nota sambland ýmissa orkugjafa, hvort sem það væri lífrænt gas, vindorka, vatnsafl eða jarðvarmi. Taki Evrópa og Bandaríkin ekki til hendinni segir Ólafur Ragnar fullvíst að Kínverjar nái á þessum tuttugu árum afgerandi forystu í þróun á allri tækni sem snúi að nýtingu visthæfrar orku. „Og í því felst áskorunin nú. Við þurfum að horfast í augu við hvernig við stöndumst samanburðinn við Kína, sem þá verður fremst á þessu sviði í heiminum.“ Hann segir kapphlaupið vera við Kína. „Og ef við töpum því þá verður tæknin og aðferðirnar sem þróað er í Kína útflutningsvara þeirra til okkar heimshluta. Ekki okkar tækni og sérfræðiþekking þangað.“ Ástæður Kínverja til þess að taka upp visthæfa orku eru af tvennum toga, að mati Ólafs Ragnars. Mengun í Kína sé orðin uppspretta óánægju sem þegar sé orðið vart og geti alið af sér stjórnmálalegan óróleika. Þannig hafi síðustu ár verið um 50 þúsund mótmæli á ári í Kína vegna mengunar. Hin ástæðan segir Ólafur að sé bráðnun jökla í Himalaja-fjöllunum. „Kínverjum finnst bitamunur en ekki fjár, hvort sú bráðnun á sér stað á 30 eða 70 árum,“ sagði hann.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira