Sjaldgæft að menn séu dæmdir í áfengismeðferð 6. október 2010 15:37
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir ekki algengt að dómstólar dæmi menn í áfengismeðferð en sér ekkert því til fyrirstöðu. Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt heimilislausan karlmann til áfengismeðferðar eftir að hann gerðist sekur um óspektir á almannafæri undir áhrifum áfengis. Maðurinn er dæmdur í skilorðsbundið fangelsi til tveggja mánaða en skilorðið er háð því að hann sé edrú og gangist undir dvöl á hæli í allt að eitt ár þar sem hann fer í meðferð vegna neyslu áfengis og deyfilyfja. Þórarinn tekur fram að dómari hafi væntanlega tekið ákvörðun um að dæma á þennan hátt eftir að hann hafi í samskiptum sínum við sakborning talið hann tilbúinn til að hætta neyslu áfengis og deyfilyfja. Maðurinn játaði öll brot sín en hann var meðal annars dæmdur fyrir að hafa ölvaður valdið hneykslan í verslun Samkaupa á Selfossi þegar hann datt utan í hillur verslunarinnar vegna ástands síns og valdið starfsfólki og viðskiptavinum verslunarinnar ónæði. Þá olli hann einnig ónæði, óspektum og hneykslan fyrir utan fjölbýlishús á Selfossi þar sem hann var drukkinn að trufla íbúa með því að hringja dyrabjöllum þeirra. Maðurinn viðurkenndi einnig að hafa ölvaður viðhaft óspektir, hneykslan og hættu þegar hann missti stjórn á skapi sínu í verslun Krónunnar á Selfossi. Þangað mætti hann eftir drykkju og hóf að grýta vörum að viðskiptavinum og starfsfólki. Sakborningur játaði ennfremur að hafa í heimildarleysi dvalist í sorpgeymslu fjölbýlishúss á Selfossi og þar ölvaðir viðhaft hárreysti og óspektir á almannafæri og þannig raskað næturró íbúa hússins og valdið þeim ónæði. Auk þessa gerði hann sig heimkominn í hitakompu í heimildarleysi, sparkaði í lögreglumann og lagðist til svefns fyrir utan matvöruverslun eftir að hafa setið við drykkju.
Tengdar fréttir Dæmdur í meðferð eftir ítrekuð brot Karlmaður var, í Héraðsdómi Suðurlands í dag, dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að sækja áfengismeðferð á meðferðarstofnun í allt að eitt ár fyrir ítrekuð áfengislagabrot. 6. október 2010 14:57 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Dæmdur í meðferð eftir ítrekuð brot Karlmaður var, í Héraðsdómi Suðurlands í dag, dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að sækja áfengismeðferð á meðferðarstofnun í allt að eitt ár fyrir ítrekuð áfengislagabrot. 6. október 2010 14:57