Innlent

Fáir fá sértæka skuldaaðlögun

Eftirlitsnefnd vill tryggja umboðsmanni skuldara nægt starfsfólk. Fréttablaðið/Anton
Eftirlitsnefnd vill tryggja umboðsmanni skuldara nægt starfsfólk. Fréttablaðið/Anton
Eingöngu 128 einstaklingar hafa gengið frá endanlegum samningum um sértæka skuldaaðlögun og 51 fyrirtæki í farið í gegnum fjárhagslega endur­skipulagningu.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skýrslu eftirlitsnefndar um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. Skýrslan var kynnt ríkisstjórn og formönnum stjórnarandstöðuflokkanna í gær. Í skýrslunni er hæga­gangurinn gagnrýndur og mælt með aðgerðum til að flýta fyrir skuldaaðlögun jafnt einstaklinga sem fyrirtækja. - jab



Fleiri fréttir

Sjá meira


×