Innlent

Saksóknari valinn á morgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þingmannanefnd Atla Gíslasonar kemur saman í fyrramálið. Mynd/ Stefán.
Þingmannanefnd Atla Gíslasonar kemur saman í fyrramálið. Mynd/ Stefán.
Þingmannanefnd Atla Gíslasonar kemur saman til fundar klukkan 10 í fyrramálið. Eina dagskrárefni fundarins er tilnefning saksóknara og varasaksóknara í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.

Búist er við því að saksóknari og varasaksóknari verði svo kosnir á þingfundi síðar um daginn. Sigríður J. Friðjónsdóttir aðstoðarríkissaksóknari staðfesti við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis á sunnudaginn að hún hefði verið beðin um að taka að sér embætti saksóknara Alþingis.

Upphaflega var gert ráð fyrir að saksóknari yrði kosinn í dag en það frestaðist.

Ekki hefur náðst í Atla Gíslason í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×