Íslensk börn verða illa úti í kreppunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. janúar 2010 14:12 Geir Gunnlaugsson segir að íslensk börn fari illa út úr kreppunni. Mynd/ Anton.
Íslenskir sérfræðingar á sviði lýðheilsu telja merki um aukin fjölskylduvandræði eftir fjármálahrunið árið 2008 sem skildi fjölda foreldra eftir í fjárhagsvanda. Fjallað er um málið á vef breska blaðsins Guardian í dag. Geir Gunnlaugsson, nýskipaður landlæknir, segist í samtali við Guardian ekki vera í vafa um það hvaða hópur hafi farið verst út úr kreppunni á Íslandi - það séu börn. Tilkynningum til barnaverndanefnda hafi fjölgað frá hruninu en nefndirnar hafi líka verið vel á varðbergi. „Við teljum að það hafi reynt mjög mikið á samskipti innan fjölskyldna - árekstrar á meðal foreldra til dæmis," segir Geir. Álagið stafi meðal annars af fjárhagsáhyggjum og allt hafi þetta áhrif á börnin. Halldór Guðmundsson, lektor við félagsráðgjafadeild við Háskóla Íslands, tekur í sama streng og Geir. Hann segir að börn spyrji hvað sé að gerast, hvað það þýði að Ísland sé í kreppu og hvað verði um þau. Guardian segir að bæði Geir og Halldór hafi mestar áhyggjur af því hvaða áhrif langtímaatvinnuleysi hafi á Íslendinga, en á Íslandi hafi atvinnuleysi varla þekkst fyrir bankahrunið.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira