Innlent

Sprengjulistamaður segir niðurrifið í raun gálgahúmor

þórarinn jónsson með sprengjulistaverkið.
þórarinn jónsson með sprengjulistaverkið.

„Manni sýnist þetta vera nokkuð hefðbundin leið kerfisins til þess að takast á við vandamál. Það er auðveldast að rífa niður og henda," segir listamaðurinn Þórarinn Jónsson en starfsmenn Faxaflóahafnar bútuðu niður og hentu gálga sem Þórarinn hafði smíðað og haft til sýnis á listasýningunni „Slipp my mind".

Hafnarstjórinn Gísli Gíslason sagði starfsmenn sína hafa fjarlægt gálgann af Daníelslipp á mánudaginn. Ástæðan var sú að reiturinn var fenginn að láni yfir helgina að hans sögn, en þegar verkið stóð enn á reitnum á mánudaginn síðasta hafi verið ákveðið að fjarlæga hann. Meðal annars vegna almannahagsmuna eins og Gísli orðar það.

Þá höfðu einnig borist kvartanir frá nágrönnum vegna verksins.

„Þetta er svona verk sem pissar svolítið framan í almenning. Þannig ég bjóst eiginlega við neikvæðum viðbrögðum," segir Þórarinn sem segist ekki ætla að kæra skemmdaverkið, aðallega vegna þess að hann hefur ekki tíma til þess þar sem hann er að flytja til útlanda.

„Að lokum reyndist þetta bara vera gálgahúmor," segir Þórarinn sem þykir málið frekar spaugilegt heldur en alvarlegt.


Tengdar fréttir

Starfsmenn hafnarstjóra hentu gálganum

„Við bútuðum þetta bara niður,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafnar, en starfsmenn hafnarinnar bútuðu niður og hentu gálga sem listamaðurinn Þórarinn Jónsson reisti á Daníelsslippi. Gálginn var hluti af listasýningunni „Slipp my mind“ sem var opnuð á laugardaginn.

Gálga stolið af sprengjulistamanni

„Það virðist hafa verið tekinn í sundur og fjarlægt,“ segir listamaðurinn Þórarinn Jónsson en fjögurra metra hár gálgi sem stóð á Daníelslippi er horfinn. Gálginn var listaverk og tilheyrði sýningunni „Slipp my mind“. Sjö aðrir listamenn sýndu einnig verk sín á sýningunni. Þau verk fengu að standa í friði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×