Innlent

Söluskáli hjá Leifsstöð skapi tekjur fyrir Keili

Keilir - miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs hefur óskað eft því við sveitarfélagið Garð að fá allt að fimm þúsund fermetra lóð undir „fjölnota orkustöð" hjá síðasta hringtorginu áður en beygt er inn að Leifsstöð.

Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, segist sjá fyrir sér þjónustumiðstöð á borð við Staðarskála þar sem leiðirnar í Leifsstöð, Keflavík og Sandgerði mætast.

„Við hugsum þetta sem fyrsta möguleika á stoppi fyrir útlendinga þegar þeir eru komnir úr stressinu úr flugstöðinni og þeir sem eru að taka á móti einhverjum að utan geta beðið þarna frekar en að standa þreyttir og pirraðir inni í flugstöð," útskýrir Hjálmar sem kveður verkefnið unnið í samstarfi við sveitarfélögin í nágrenninu, Þróunarfélagið og ýmsa aðila sem hafi áhugaverðar hugmyndir.

Ætlun Keilis er að bjóða upp á vistvæna orkugjafa á borð við metan, vetni, bíódísil og rafmagn auk þess sem bensín og dísil verður selt í samstarfi við aðra. Hjálmar segir Keili vilja þjálfa nemendur orkuskóla síns í að umgangast vistvænt eldsneyti. „Við erum að fara í þetta til að skapa flotta kennsluaðstöðu en vonandi um leið góðar tekjur," segir hann.

Lóðaumsóknin er enn á borði sveitarstjórnarinnar í Garði. Hjálmar segir viðtökurnar þar hafa verið mjög jákvæðar og vonast til að málið gangi sem hraðast fyrir sig. „Málið er enn á hugmyndastigi og við eigum eftir að halda kynningu um það og umræðufundi með okkar samstarfsaðilum," segir Hjálmar sem kveðst sannfærður um að nýi skálinn leiði af sér „endalausa" aðra starfsemi. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×