Söluskáli hjá Leifsstöð skapi tekjur fyrir Keili 3. september 2010 05:45
Keilir - miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs hefur óskað eft því við sveitarfélagið Garð að fá allt að fimm þúsund fermetra lóð undir „fjölnota orkustöð" hjá síðasta hringtorginu áður en beygt er inn að Leifsstöð. Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, segist sjá fyrir sér þjónustumiðstöð á borð við Staðarskála þar sem leiðirnar í Leifsstöð, Keflavík og Sandgerði mætast. „Við hugsum þetta sem fyrsta möguleika á stoppi fyrir útlendinga þegar þeir eru komnir úr stressinu úr flugstöðinni og þeir sem eru að taka á móti einhverjum að utan geta beðið þarna frekar en að standa þreyttir og pirraðir inni í flugstöð," útskýrir Hjálmar sem kveður verkefnið unnið í samstarfi við sveitarfélögin í nágrenninu, Þróunarfélagið og ýmsa aðila sem hafi áhugaverðar hugmyndir. Ætlun Keilis er að bjóða upp á vistvæna orkugjafa á borð við metan, vetni, bíódísil og rafmagn auk þess sem bensín og dísil verður selt í samstarfi við aðra. Hjálmar segir Keili vilja þjálfa nemendur orkuskóla síns í að umgangast vistvænt eldsneyti. „Við erum að fara í þetta til að skapa flotta kennsluaðstöðu en vonandi um leið góðar tekjur," segir hann. Lóðaumsóknin er enn á borði sveitarstjórnarinnar í Garði. Hjálmar segir viðtökurnar þar hafa verið mjög jákvæðar og vonast til að málið gangi sem hraðast fyrir sig. „Málið er enn á hugmyndastigi og við eigum eftir að halda kynningu um það og umræðufundi með okkar samstarfsaðilum," segir Hjálmar sem kveðst sannfærður um að nýi skálinn leiði af sér „endalausa" aðra starfsemi. - gar
Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Facebook lá niðri Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Fleiri fréttir Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Sjá meira