Borgarráð stofnar menningarsjóð tengdan friðarsúlunni 7. október 2010 15:16 MYND/Valur Hrafn
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að stofna Menningarsjóðinn Imagine Peace - Reykjavík. Sjóðurinn er stofnaður með það að markmiði að styðja við og styrkja menningarstarf sem endurspeglar á einhvern hátt þau gildi sem IMAGINE PEACE Friðarsúlan í Viðey byggir á. Í sameiginlegri bókun borgarráðs segir að friður, menning og mannréttindi í anda John Lennon og Yoko Ono sé leiðarljós sjóðsins en markmið hans er að styðja við og styrkja menningarverkefni tengd börnum, ungmennum, grænum gildum og hreinni orku og verkefnum sem stuðla að eflingu mannréttinda og friðarstarfs. „Borgarráð gleðst yfir þessu samstarfi borgarinnar og Yoko Ono og þakkar þeim sem unnið hafa að Imagine Peace - Reykjavík," segir ennfremur. „Listakonan og friðarsinninn Yoko Ono stóð fyrir uppsetningu verksins IMAGINE PEACE ( FRIÐARSÚLUNNAR) í Viðey. Verkefnið var unnið með stuðningi Reykjavíkurborgar og var ljós Friðarsúlunnar tendrað með vígslu þann 9. október 2007," segir einnig og sagt að verkið hafi vakið heimsathygli og viðburðir því tengdir hafi árvisst lífgað upp á borgina og laðað hingað erlenda gesti. „Á þeim tíma sem liðinn er hafa komið upp tilfelli þar sem ýmsir aðilar hafa viljað gefa út efni, framleiða minjagripi eða halda viðburði og gefa afrakstur eða hluta hans til einhvers tengt Friðarsúlunni. Með stofnun sjóðsins skapast nú farvegur fyrir stuðning við góð málefni," segir einnig, en verkefnin skulu vera í samræmi við hugmyndafræði IMAGINE PEACE, sem felst í því að hver einstaklingur hafi vald til að breyta heiminum og að örlaga byrjunarpunkturinn sé sá að ,,Ímynda sér að allt fólk búi við frið". 66° Norður hefur framleitt sérstaka boli og plaköt í tengslum við viðburðina í Reykjavík í ár og rennur meira en helmingur söluverðs í sjóðinn. Íslandspóstur, sem gaf út bókina um Friðarsúluna, og valdir söluaðilar, munu gefa 30% af söluandvirði bókarinnar í sjóðinn.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira