Á annað hundrað erlendir fjölmiðlamenn komu til Íslands 8. mars 2010 12:26 Koma erlendra fréttamanna hingað til lands hefur skilað sér í yfirvegaðri umfjöllun og meiri skilningi á stöðu og sjónarmiðum Íslands, að mati utanríkisráðuneytisins. Mynd/GVA
Á annað hundrað erlendir fjölmiðlamenn frá um 50 fjölmiðlum komu til Íslands til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave í vikunni 1.-7. mars. Fjölmiðlafólkið kom einkum frá Norðurlöndunum, Bretlandi og Hollandi, en einnig frá Þýskalandi, Frakklandi, Sviss, Ítalíu, Írlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Japan og Kína. Þegar ljóst var hversu mikill áhugi var erlendis á þjóðaratkvæðagreiðslunni var ákveðið að opna fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fréttamenn í Iðnó, að fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Það var gert miðvikudaginn 3. mars og var henni lokað að kvöldi sunnudags 7. mars. Þar var boðið upp á vinnuaðstöðu og fundi, formlega og óformlega, með ráðherrum og þingmönnum, auk þess sem aðrir hópar og einstaklingar fengu tækifæri til að koma sínum málstað á framfæri. 3. mars hélt dómsmálaráðherra fund með erlendum fréttamönnum í fjölmiðlamiðstöðinni. 4. mars sat efnahags- og viðskiptaráðherra fyrir svörum en einnig komu þingmennirnir Guðbjartur Hannesson og Kristján Þór Júlíusson í fjölmiðlamiðstöðina, kynntu feril Icesave-málsins og ræddu við fréttamenn. Seðlabanki Íslands hélt þann sama dag kynningu fyrir erlenda fréttamenn á stöðu íslenskra efnahagsmála. 5. mars hélt forsætisráðherra fjölsóttan blaðamannafund í Þjóðmenningarhúsinu. 6. mars hélt utanríkisráðherra fund í fjölmiðlamiðstöðinni og svaraði spurningum fjölmiðla þegar fyrstu tölur lágu fyrir. Loks hélt fjármálaráðherra blaðamannafund í fjölmiðlamiðstöðinni í gær 7. mars. Auk þessara funda hafa ráðherrarnir veitt hinum erlendu fjölmiðlum og þeim sem ekki sendu fólk hingað hátt í hundrað einkaviðtöl. Ljóst er að koma erlendra fréttamanna hingað til lands hefur skilað sér í yfirvegaðri umfjöllun og meiri skilningi á stöðu og sjónarmiðum Íslands, að mati utanríkisráðuneytisins. Alvarlegra staðreyndavilla gæti mun minna en áður og samstarf og þjónusta við fréttamenn hafi styrkt enn frekar tengslanet stjórnvalda við erlenda fjölmiðla.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Fleiri fréttir Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Sjá meira