Flaug til Íslands fyrir Fíusól 8. mars 2010 06:00 í bóli fíusólar Andrea Sólveig og Þórunn Helga fengu að hitta sjálfa Fíusól í Þjóðleikhúsinu og höfðu mjög gaman af.fréttablaðið/gva „
Við erum óskaplega þakklátar Þjóðleikhúsinu fyrir að hafa tekið okkur svona vel. Þetta var alveg frábært,“ segir Þórunn Helga Traustadóttir. Hún fékk að vera viðstödd rennsli á leikritinu Fíasól, sem verður frumsýnt á næstunni, ásamt sjö ára barnabarni sínu Andreu Sólveigu Thierry-Mieg. Andrea Sólveig býr í Frakklandi og ákvað að nota vetrarleyfið sitt úr skólanum til að fljúga í fyrsta skipti alein til Íslands og sjá sýninguna. Hún er mikill aðdáandi Fíusólar eftir að amma hennar las upp úr samnefndum bókum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur fyrir hana í gegnum Skype-samskiptatækið. „Ég passa upp á að rækta sambandið við barnabörnin í útlöndum eins og ég lifandi get. Meðal annars las ég fyrir hana allar bækurnar um hana Fíusól,“ segir Þórunn Helga. „Við hittumst á Skype-inu þrisvar til fjórum sinnum í viku og ég les fyrir hana kvöldsöguna. Svo kyssumst við góða nótt og hún skríður í bólið sitt,“ útskýrir hún. „Þetta er frábært tæki fyrir okkur sem eigum börn og barnabörn í útlöndum, þetta breytir öllu. Maður getur ræktað, ekki bara tilfinningarnar, heldur einnig tungumálið og allt verður svo miklu einfaldara og betra þegar þetta er til staðar.“ Þórunn segir að Andrea litla sé ennþá í skýjunum eftir að hafa séð sýninguna. „Við áttum alveg dásamlega stund. Þetta var þvílík upplifun fyrir barnið að verða nánast virkur þátttakandi og hoppa í bólinu hennar Fíu og kynnast öllum persónulega. Þetta var alveg stórkostlegt.“ -fb
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira