Innlent

Opið í Bláfjöllum

Opið er í Bláfjöllum í dag til kukkan fimm. Þar er hiti við frostmark og fremur hægur vindur.

Það hefur snjóað nokkuð síðasta sólarhring en enn er nokkuð blautt fyrir neðan nokkrar lyftur í Suðurgili sem ekki er hægt að opna. Norðurleiðin og byrjendalyftur við Bláfjallaskála verða opnar, ásamt Mikka ref og Kormáki afa.

Þá er skíðasvæði Dalvíkinga opið til kukkan fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×