Innlent

Gunnar snýr aftur í bæjarstjórn

Gunnar Birgisson.
Gunnar Birgisson.

Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, snýr aftur í bæjarstjórnarmálin þegar hann tekur sæti á bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn næsta. Frá þessu var greint á vefsíðunni kopavogur.net.

Gunnar tapaði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á dögunum fyrir Ármanni Kr. Ólafssyni. Þá vakti athygli að starfandi bæjarstjóri Kópavogs, og samflokksmaður Gunnars, Gunnsteinn Sigurðsson, beitti sér gegn honum í prófkjörinu.

Gunnar vék úr bæjarstjórastólnum í fyrra eftir deilur um viðskipti fyrirtækis dóttur hans við bæinn. Hann tók sér síðan einnig leyfi sem bæjarfulltrúi eftir að rannsókn hófst á störfum hans og fleiri bæjarfulltrúa í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×