Tilkynning frá landskjörstjórn 7. mars 2010 19:53
Landskjörstjórn hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: Samkvæmt skýrslum yfirkjörstjórna voru 229.977 kjósendur á kjörskrá við þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga nr. 1/2010, sem fram fór laugardaginn 6. mars 2010, og greiddu 144.231 manns atkvæði. Spurningin sem lögð var fyrir í atkvæðagreiðslunni var svohljóðandi: „Lög nr. 1/2010 kveða á um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. Alþingi samþykkti lög nr. 1/2010 en forseti synjaði þeim staðfestingar. Eiga lög nr. 1/2010 að halda gildi?" Niðurstaða talningar yfirkjörstjórna og umdæmiskjörstjórna á landinu öllu var eftirfarandi: 2.599 svöruðu: „Já, þau eiga að halda gildi." 134.397 svöruðu: „Nei, þau eiga að falla úr gildi." Ógild atkvæði voru 7.235. Þar af voru 6.744 seðlar auðir en 491 atkvæði var ógilt af öðrum ástæðum. Nú þegar atkvæðagreiðslunni er lokið munu yfirkjörstjórnir senda landskjörstjórn gerðabækur sínar ásamt þeim atkvæðaseðlum sem ágreiningur hefur verið um. Þegar þessi gögn berast landskjörstjórn auglýsir hún með hæfilegum fyrirvara hvar og hvenær hún kemur saman til að úrskurða um ágreiningsseðlana og lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Er við það miðað að þessi fundur verði haldinn mánudaginn 15. mars næst komandi. Heimilt er að kæra ólögmæti atkvæðagreiðslunnar til landskjörstjórnar og skulu slíkar kærur sendar landskjörstjórn eigi síðar en tveimur dögum áður en fundur landskjörstjórnar verður haldinn. Að þeim fundi loknum tilkynnir landskjörstjórn dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu um niðurstöður sínar. Ráðuneytið auglýsir að því loknu úrslit atkvæðagreiðslunnar í Lögbirtingablaði og Ríkisútvarpi og að öllu óbreyttu birtir auglýsingu í A-deild Stjórnartíðinda um að lög nr. 1/2010 séu fallin úr gildi.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Sjá meira