Morðingi á flótta: Ætlar ekki að láta ná sér lifandi 6. júlí 2010 09:13 Raoul Moat. MYND/AFP
Breskir lögreglumenn leita enn að morðingjanum Raoul Moat sem hótar nú lögreglunni öllu illu. Mikið lið vopnaðra lögreglumanna hefur leitað að Moat frá því á laugardag en þá særði hann fyrrverandi kærustu sína lífshættulega og skaut kærasta hennar til bana. Morðið var framið á heimili móður konunnar í Gateshead í Northumbria héraði. Daginn eftir skaut hann lögreglumann í Newcastle í andlitið þar sem hann sat í lögreglubíl sínum. Lögreglumaðurinn er alvarlega en þó ekki lífshættulega slasaður. Í gærkvöldi bárust síðan fregnir af því að Moat, sem í síðustu viku var sleppt úr fangelsi, hefði sent lögreglunni 40 blaðsíðna bréf á sunnudag þar sem hann lýsir yfir stríði gegn lögreglunni í Northumbria héraði. Í bréfinu segir Moat að almenningur þurfi ekki að óttast hann, en að öðru máli gegni um lögregluna þar sem hann muni ekki hætta fyrr en hann gefi upp öndina. Hann kennir lögreglunni um allar sínar ófarir og segir að hún hafi tekið frá sér frelsið, börnin hans og heimili. En Moat var dæmdur og fangelsaður fyrir ofbeldisverk í fyrra. Lögreglan hefur verið gagnrýnd nokkuð í málinu en á föstudag, áður en Moat var sleppt úr fangelsi, höfðu fangaverðir hans varað lögregluna við að hann hefði í hyggju að myrða kærustu sína fyrrverandi. Þá hefur einnig komið í ljós að Moat hringdi í neyðarlínuna tíu mínútum áður en hann skaut lögregluþjóninn á sunnudag þar sem hann lýsti því í smáatriðum hvað hann ætlaði sér að gera. Þá hefur hann birt lista á Facebook síðu sinni þar sem hann tiltekur hverja hann ætli sér að taka af lífi.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira