Innlent

Vilja bjóða samfélagshetjum í laxveiði

Borgarstjórinn vill deila Elliðaánum með samfélagshetjum.
Borgarstjórinn vill deila Elliðaánum með samfélagshetjum.

Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur ákveðið að eftirláta almenningi tvo fría veiðidaga borgarfulltrúa í Elliðaánum 13. og 20. júlí næstkomandi samkvæmt tilkynningu frá borgarstjórn.

Óskað er eftir að borgarbúar sendi borgaryfirvöldum ábendingar um einstaklinga sem hafa lagt gott til samfélagsins eða náungans eða eiga að öðrum ástæðum skilið að renna fyrir lax í Elliðaánum, hjarta Reykjavíkur. Veiðireynsla er ekki nauðsynleg. Ábendingarnar þurfa að berast Reykjavíkurborg í gegnum netfangið ellidaar@reykjavik.is eigi síðar en fyrir hádegi föstudaginn 9. júlí nk.

Jón Gnarr, borgarstjóri, hvetur borgarbúa til að senda inn ábendingar um vaska veiðimenn.

„Borgarfulltrúar í Reykjavík hafa átt þess kost að veiða ókeypis í Elliðaánum í næstum því hálfa öld. Því er löngu orðið tímabært að þeir leyfi fleirum að komast að," segir hann og mælir með veiðinni.

„Ég hafði mjög gaman að því að opna Elliðaárnar fyrir nokkrum vikum. Nú óska ég þess að aðrir fái að njóta sömu reynslu í fallegri náttúru í borgarumhverfinu."

Ábendingum um veiðimenn þarf að fylgja stuttur rökstuðningur ásamt nafni, heimilisfangi og símanúmeri hins eða hinna tilnefndu. Eftir að frestur til að senda inn ábendingar rennur út verður ákveðið hvaða 24 veiðimenn hreppa hnossið.

Hverjum þessara veiðimanna verður úthlutað leyfi fyrir einni stöng fyrri eða seinnihluta annars hvors umræddra daga. Sex stangir eru í boði hvorn dagpart, þ.e. annars vegar frá kl. 7 til 13 og hins vegar frá kl. 15 til 21. Alls eru því í boði 24 stangir og er tveimur heimilt að vera um hverja stöng.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×