Vilja bjóða samfélagshetjum í laxveiði 6. júlí 2010 13:27 Borgarstjórinn vill deila Elliðaánum með samfélagshetjum.
Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur ákveðið að eftirláta almenningi tvo fría veiðidaga borgarfulltrúa í Elliðaánum 13. og 20. júlí næstkomandi samkvæmt tilkynningu frá borgarstjórn. Óskað er eftir að borgarbúar sendi borgaryfirvöldum ábendingar um einstaklinga sem hafa lagt gott til samfélagsins eða náungans eða eiga að öðrum ástæðum skilið að renna fyrir lax í Elliðaánum, hjarta Reykjavíkur. Veiðireynsla er ekki nauðsynleg. Ábendingarnar þurfa að berast Reykjavíkurborg í gegnum netfangið ellidaar@reykjavik.is eigi síðar en fyrir hádegi föstudaginn 9. júlí nk. Jón Gnarr, borgarstjóri, hvetur borgarbúa til að senda inn ábendingar um vaska veiðimenn. „Borgarfulltrúar í Reykjavík hafa átt þess kost að veiða ókeypis í Elliðaánum í næstum því hálfa öld. Því er löngu orðið tímabært að þeir leyfi fleirum að komast að," segir hann og mælir með veiðinni. „Ég hafði mjög gaman að því að opna Elliðaárnar fyrir nokkrum vikum. Nú óska ég þess að aðrir fái að njóta sömu reynslu í fallegri náttúru í borgarumhverfinu." Ábendingum um veiðimenn þarf að fylgja stuttur rökstuðningur ásamt nafni, heimilisfangi og símanúmeri hins eða hinna tilnefndu. Eftir að frestur til að senda inn ábendingar rennur út verður ákveðið hvaða 24 veiðimenn hreppa hnossið. Hverjum þessara veiðimanna verður úthlutað leyfi fyrir einni stöng fyrri eða seinnihluta annars hvors umræddra daga. Sex stangir eru í boði hvorn dagpart, þ.e. annars vegar frá kl. 7 til 13 og hins vegar frá kl. 15 til 21. Alls eru því í boði 24 stangir og er tveimur heimilt að vera um hverja stöng.
Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Erlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Fleiri fréttir Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sjá meira