Innlent

Starfsmenn borgarinnar segja margar stofnanir undirmannaðar

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar krefst þess að viðsemjendur umgangist gerða launasamninga af virðingu og að unnið verði í nánu samráði við starfsmenn og stéttarfélög að finna aðrar leiðir en launaskerðingu og uppsagnir til að hagræða í rekstri. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar félagsins um kjaramál sem haldinn var í gær.

„Margar stofnanir eru undirmannaðar vegna niðurskurðar um leið hafa verkefni aukist og víða gengið á kjör starfsmanna. Við þetta verður ekki unað," segir í ályktuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×