Dylgjur um getuleysi eru alveg rakalausar 15. febrúar 2010 03:15 Forstjóri Íslenska gámafélagins bar Sorpstöð Suðurlands þungum sökum. Formaður stjórnar Sorpstöðvarinnar segir rangfærslur og rakalausar ávirðingar ekki styrkja framþróun í úrgangsmálum. Fréttablaðið/GVA „
Forstjórinn þekkir manna best til þessara mála og veit að dylgjur hans eiga ekki við nein rök að styðjast,“ segir Örn Þórðarson, formaður stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands, um ásakanir Jóns Frantzsonar, forstjóra Íslenska gámafélagsins, á hendur Sorpstöðinni. Í viðtali við Fréttablaðið og í grein í Sunnlenska fréttablaðinu fyrir skömmu sakaði Jón Frantzson forsvarsmenn Sorpstöðvarinnar um fyrirhyggjuleysi í að finna nýjan urðunarstað fyrir Sunnlendinga í stað urðunarstaðar í Kirkjuferjuhjáleigu sem lokað var í desember. Hann sagði að Íslenska gámafélagið hefði lagt fram kæru vegna meintra brota á bæði stjórnsýslu- og samkeppnislögum. Kæran væri byggð á ákvæði í samningi Sorpstöðvarinnar og Sorpu um að allur endurvinnanlegur úrgangur af Suðurlandi færi ásamt öðru rusli til Sorpu á Álfsnesi. Örn Þórðarson segir að forstjóri Íslenska gámafélagsins viti að dylgjur hans um fyrirhyggju- og getuleysi stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands varðandi leit að nýjum urðunarstað séu órökstuddar. „Vinna Sorpstöðvar Suðurlands hefur byggst á þekkingu, framsýni og áhuga á að leita hagstæðustu og hentugustu leiða,“ segir Örn sem kveður stjórn Sorpstöðvarinnar alltaf hafa unnið að því að hafa úrgangsmál á Suðurlandi í eins góðum farvegi og aðstæður leyfi. Varðandi nýjan urðunarstað á Suðurlandi segir Örn að eftir hertar reglur á sviði úrgangsstjórnunar hafi sveitarfélög á suðvesturhorni landsins tekið upp samstarf og gert ráð fyrir sameiginlegum urðunarstað fyrir suðvesturhornið. „Í kjölfar hrunsins kom síðan fram áhugi hjá sveitarfélögum á Suðurlandi um að opnaður yrði nýr urðunarstaður á Suðurlandi í stað þess að nýta einn sameiginlegan stað fyrir allt suðvesturhornið. Unnið hefur verið að slíkri lausn síðan þá,“ bætir Örn við og ítrekar að farið sé eftir lögum og reglum og eftir þeim markmiðum sem stjórnvöld og sveitarfélög á Suðurlandi hafi sett sér. „Í dag eru þessi markmið afar metnaðarfull, en þeim fylgir aukinn kostnaður fyrir íbúa og fyrirtæki. Það hefur alltaf legið fyrir. En um leið fylgir þeim aukinn samfélags- og umhverfislegur ávinningur,“ útskýrir forstjóri Sorpstöðvarinnar og kallar eftir áframhaldandi góðu samstarfi allra sem koma að málefnum úrgangsstjórnunar, jafnt opinberra sem einkaaðila: „Rangfærslur og rakalausar ávirðingar eru ekki rétta leiðin til að styrkja þá framþróun í úrgangsmálum sem fram undan er. Sérstaklega ekki þegar talað er gegn betri vitund.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Fleiri fréttir Sannfærð um undanþágur í fiskveiði- og landbúnaðarmálum Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Sjá meira