Innlent

Lagastofnun býr til kynningarefni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Úr safni.
Úr safni. Mynd/GVA
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur falið Lagastofnun Háskóla Íslands að semja hlutlaust kynningarefni fyrir almenning vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave lögin sem fram fer laugardaginn 6. mars 2010. Einstaklingar sem hafa tekið þátt í umræðum á opinberum vettvangi um það efni sem kosið er um í þjóðaratkvæðagreiðslunni koma ekki að verkefninu.

Lagastofnun var falið að semja texta þar sem útskýrð eru í stuttu máli nokkur meginatriði sem varða þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave, ástæður hennar og afleiðingar. Efninu er ekki ætlað að reifa ólík sjónarmið um það efni sem kosið verður um, að fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Þetta er gert í samræmi við nefndarálit allsherjarnefndar Alþingis um mikilvægi slíkrar kynningar og umræður á Alþingi. Efnið var kynnt nefndinni á fundi í morgun.

Textinn er ætlaður til notkunar á sérstakri vefsíðu, thjodaratkvaedi.is, sem opnuð verður á næstu dögum og í kynningarbæklingi sem dreift verður um allt land. Miðað er við að dreifingu hans verði lokið um tíu dögum fyrir kjördag. Lagastofnun hefur fengið til liðs við sig almannatengslafyrirtækið Athygli sem annast hönnun og framsetningu efnis á vef og í bæklingi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×