Engin ákvörðun í máli Ásbjörns 15. febrúar 2010 12:45 Efnahagsbrotadeild fékk greinagerð og gögn frá lögmanni Ásbjörns fyrir helgi. Mynd/ Vilhelm.
Ekki liggur fyrir ákvörðun um hvort hafin verði rannsókn hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra á ólögmætri arðgreiðslu Ásbjörns Óttarssonar, alþingismanns, út úr eigin félagi. Þá hefur deildin ekki skoðað lánveitingar Tryggva Þórs Herbertssonar alþingismanns úr einkahlutafélaginu Varnagla. Nú fyrir helgi fékk efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra greinargerð og gögn frá lögmanni Ásbjörns um arðgreiðslu til hans út úr útgerðarfélaginu Nesveri. Ásbjörn, sem er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, greiddi sér sem kunnugt er 65 milljónir króna í arð út úr Nesveri vegna rekstrarársins 2008 þrátt fyrir tap fyrirtækisins upp á 600 milljónir króna það ár. Taprekstur ársins orsakaði neikvætt eigið fé upp á rúmlega 150 milljónir króna. Ásbjörns greiddi sér 20 milljónir króna í arð út úr Nesveri á árinu 2007 vegna rekstrarársins 2006 og hefur hann viðurkennt að hafa brotið lög með arðgreiðslunni. Þá hefur hann jafnframt endurgreitt fjárhæðina. Útgerðarfélagið Nesver er í eigu Ásbjörns og fjölskyldu hans, en fyrirtækið skuldaði íslensku bönkunum á annan milljarð króna í lok árs 2008. Eins og fréttastofa hefur greint frá hefur efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra haft málið til athugunar án þess að um formlega rannsókn sé að ræða. Að sögn Helga Magnúsar Gunnarssonar, saksóknara efnahagsbrotadeildar, hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort hafin verði formleg rannsókn. Mál annars þingmanns, Tryggva Þórs Herbertssonar, hefur einnig verið til umfjöllunar en hann lét einkahlutafélag sitt Varnagla, sem fjármagnað var af Askar Capital og Glitni banka, lána sér 26 milljónir króna til að kaupa kjallarann í húsinu þar sem hann býr. Lánveitingar einkahlutafélaga til hluthafa eru bannaðar nema um sé að ræða svokölluð viðskiptalán, sem séu liður í starfsemi viðkomandi félags og venjubundin fyrir starfsemi þess. Að sögn Helga Magnúsar hefur efnahagsbrotadeildin ekki haft lánveitingu Tryggva Þórs til athugunar, en Tryggvi Þór hefur sjálfur sagt að ekkert sé óeðlilegt við lánið enda sé lánastarfsemi hluti af starfsemi Varnagla.
Mest lesið Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Fleiri fréttir Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Sjá meira