Vonar að „Dude“ fái Óskarinn 4. mars 2010 06:00 Svavar og ólafur Svavar Helgi og Ólafur Sverrir skipuleggja The Big Lebowski-hátíðina í fjórða sinn.fréttablaðið/valli
Fjórða árlega Big Lebowski-hátíðin verður haldin laugardagskvöldið 13. mars í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Samnefnd gamanmynd um hinn lata keiluspilara „The Dude“ og vandræði hans kom út 1998 og síðan þá hefur myndast í kringum hana hálfgerður sértrúarsöfnuður, bæði hér heima og erlendis. „Við erum að reyna að gera þetta ódýrara núna þannig að þetta verður aðeins vænna fyrir budduna,“ segir Svavar Helgi Jakobsson, sem skipuleggur hátíðina ásamt Ólafi Sverri Jakobssyni. Miðann má kaupa á Bolur.is og kostar hann 2.010 krónur. Innifalið er þátttaka í hátíðinni, keila og Lebowski-stuttermabolur. Myndin The Big Lebowski verður að sjálfsögðu sýnd og eftir það er komið að keilunni. Búningakeppni verður einnig haldin, sem jafnan hefur vakið mikla lukku. „Að minnsta kosti helmingurinn hefur mætt í búningum og sumir leggja alveg þvílíkan metnað í þetta,“ segir Svavar Helgi. Um fimmtíu manns hafa mætt síðustu tvö skipti og skemmt sér hreint prýðilega. „Það er alltaf ótrúlegt hvað fólk getur skemmt sér ágætlega þótt það þekkist ekki neitt.“ Jeff Bridges, aðalleikari The Big Lebowski, gæti hreppt Óskarsverðlaunin í fyrsta sinn á sunnudagskvöld fyrir hlutverk sitt í Crazy Heart. „Ég sé hann alltaf sem sama hauginn sama hvað hann gerir. Maður sér alltaf „dúdinn“ í honum. Mér skilst að hann sé mjög „dúdalegur“ í þessari mynd þannig að maður verður að sjá hana,“ segir Svavar og telur löngu tímabært að sinn maður hreppi styttuna eftirsóttu. - fb
Mest lesið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Í jólaskapi í júní Menning Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Fleiri fréttir Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði Sjá meira