Íslendingur uppfyllti ekki lengur skilyrði laga um búsetu hér á landi 11. apríl 2010 19:32
Manni um fimmtugt brá í brún þegar Þjóðskrá tilkynnti honum að hann uppfyllti ekki lengur skilyrði laga um búsetu Íslandi. Þetta þykir manninum furðulegt enda er hann alíslenskur. Í lok desember barst Jóni Halldórssyni, leigubílstjóra á fimmtugsaldri, bréf frá Þjóðskrá. Í því stóð meðal annars: „Þjóðskrá hafa borist upplýsingar frá skattstjóranum í Reykjavík sem benda til að þér uppfyllið ekki lengur skilyrði laga um lögheimili. Samkvæmt Þjóðskrá er lögheimili yðar skráð á Íslandi en réttur til slíkrar skráningar fellur niður við búsetu yðar erlendis ef þér meðal annars stundið ekki nám þar." Þá stendur: „Með vísan til ofangreindra upplýsinga gefur Þjóðskráin yður hér með þriggja vikna frest frá dagsetningu þessa bréfs, til að færa sönnur á að þér hafið rétt til skráningar lögheimilis á Íslandi. Berist ekki svar frá yður innan tilskilins frests megi þér búast við að Þjóðskráin muni skrá lögheimili yðar utanlands án frekari tilkynningar." Jón varð að sögn fremur hissa þegar hann fékk þessa tilkynningu, einkum og sér í lagi þar sem hann er borinn og barnfæddur Íslendingur og hefur aldrei verið í námi erlendis og nokkur ár eru síðan hann fór út fyrir landssteinana síðast. Það sem hann ergir sig þó helst á er að þegar hann fór á fund yfirmanna hjá Þjóðskrár og sagðist hvorki vera útlendingur né námsmaður erlendis var hann beðinn að færa sönnur um að svo væri. Til þess þurfti hann að ráða lögfræðing og kostaði þjónusta hans um 50 þúsund krónur. Jón segist ekki kunna neinar skýringar á þessu aðrar en þær að kona hans sé frá Haíti. Hún hafi samt ekki verið í námi erlendis og því eigi bréfið ekki heldur við hana.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Sjá meira