Lífið

Kókflöskusýning í Los Angeles

Þorvaldur Örn Kristmundsson með stúlkunum í The Charlies á opnuninni í Los Angeles.
Þorvaldur Örn Kristmundsson með stúlkunum í The Charlies á opnuninni í Los Angeles.
Ljósmyndasýning með verkum Þorvaldar Arnar Kristmundssonar var opnuð í Los Angeles á dögunum. Stúlkurnar í The Charlies sungu fyrir gesti.

„Þetta var hrikalega flott „sjóv“. Kaninn kann að gera þetta,“ segir ljósmyndarinn Þorvaldur Örn Kristmundsson.

Sýning með verkum Þorvaldar Arnar var opnuð í Los Angeles á dögunum í hinu virta KONA-galleríi. Sýningin nefnist Náttúra er vörumerki, eða Nature is a Brand og er sú sama og Þorvaldur hélt í Gerðarsafni í vor þar sem þemað var kókflöskur úti í íslenskri náttúru.

Fjöldi fólks úr bandaríska fjölmiðlaheiminum mætti á opnunina, þar á meðal yfirmenn hjá sjónvarpsstöðinni NBC, blaðamaður Los Angeles Times og ljósmyndarinn Renee C. Byer, sem hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir þremur árum. Þorvaldur hafði í nógu að snúast við að taka á móti öllum gestunum en þekkti ekki næstum því alla sem hann heilsaði. „Menn eru ekkert að flagga titlum þegar þeir eru að heilsa manni,“ segir hann.

Hljómsveitin The Charlies steig á svið undir lok kvöldsins við góðar undirtektir. „The Charlies stóð sig rosalega vel. Þær eru miklu betri núna en þær hafa nokkurn tímann verið. Þær eru orðnar mjög þjálfaðar í að syngja og röddin er flott hjá stelpunum,“ segir Þorvaldur Örn. Gestirnir hrifust mjög af stúlkunum. „Þeim fannst ótrúlegt að fá stelpurnar til að syngja, út af Íslandstengingunni. Það elska allir Ameríkanar Ísland og tala um að Ísland sé eins og tunglið eða að Ísland sé frábært.“

Sýningin hans fer líklega til Atlanta í Georgíu í desember, auk þess sem honum hefur verið boðið að sýna í New York á næsta ári í galleríi í Tribeca-hverfinu. „Það er spurning hvort ég fái Björk til að koma þar fram,“ segir Þorvaldur og hlær. freyr@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.