Kókflöskusýning í Los Angeles 25. september 2010 06:00 Þorvaldur Örn Kristmundsson með stúlkunum í The Charlies á opnuninni í Los Angeles.
Ljósmyndasýning með verkum Þorvaldar Arnar Kristmundssonar var opnuð í Los Angeles á dögunum. Stúlkurnar í The Charlies sungu fyrir gesti. „Þetta var hrikalega flott „sjóv“. Kaninn kann að gera þetta,“ segir ljósmyndarinn Þorvaldur Örn Kristmundsson. Sýning með verkum Þorvaldar Arnar var opnuð í Los Angeles á dögunum í hinu virta KONA-galleríi. Sýningin nefnist Náttúra er vörumerki, eða Nature is a Brand og er sú sama og Þorvaldur hélt í Gerðarsafni í vor þar sem þemað var kókflöskur úti í íslenskri náttúru. Fjöldi fólks úr bandaríska fjölmiðlaheiminum mætti á opnunina, þar á meðal yfirmenn hjá sjónvarpsstöðinni NBC, blaðamaður Los Angeles Times og ljósmyndarinn Renee C. Byer, sem hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir þremur árum. Þorvaldur hafði í nógu að snúast við að taka á móti öllum gestunum en þekkti ekki næstum því alla sem hann heilsaði. „Menn eru ekkert að flagga titlum þegar þeir eru að heilsa manni,“ segir hann. Hljómsveitin The Charlies steig á svið undir lok kvöldsins við góðar undirtektir. „The Charlies stóð sig rosalega vel. Þær eru miklu betri núna en þær hafa nokkurn tímann verið. Þær eru orðnar mjög þjálfaðar í að syngja og röddin er flott hjá stelpunum,“ segir Þorvaldur Örn. Gestirnir hrifust mjög af stúlkunum. „Þeim fannst ótrúlegt að fá stelpurnar til að syngja, út af Íslandstengingunni. Það elska allir Ameríkanar Ísland og tala um að Ísland sé eins og tunglið eða að Ísland sé frábært.“ Sýningin hans fer líklega til Atlanta í Georgíu í desember, auk þess sem honum hefur verið boðið að sýna í New York á næsta ári í galleríi í Tribeca-hverfinu. „Það er spurning hvort ég fái Björk til að koma þar fram,“ segir Þorvaldur og hlær. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Fleiri fréttir Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Sjá meira