Innlent

Guðni ráðinn til að sinna hagsmunagæslu í mjólkuriðnaði

Guðni fyrir utan Alþingi fáeinum dögum áður en hann lét af þingmennsku og formennsku í Framsóknarflokknum 17. nóvember 2008.
Guðni fyrir utan Alþingi fáeinum dögum áður en hann lét af þingmennsku og formennsku í Framsóknarflokknum 17. nóvember 2008. Mynd/Valgarður
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði hafa ráðið Guðna Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra og formann Framsóknarflokksins, til starfa. Frá þessu er greint á vef Bændablaðsins.

Þar segir að Guðni, sem er búfræðingur að mennt, muni sinna hagsmunagæslu fyrir afurðastöðvarnar og gæta þess að framleiðendur og afurðastöðvar nýti sem best tiltæka markaði hverju sinni, innan lands og utan.

Guðni starfaði sem Mjólkureftirlitsmaður hjá Mjólkurbúi Flóamanna árunum 1976 til 1987 þegar hann var fyrst kjörinn á þing. Hann tók við sem formaður Framsóknarflokksins þegar Jón Sigurðsson sagði af sér embætti eftir alþingiskosningarnar 2007. Sjálfur sagði Guðni af sér þingmennsku og formennsku í nóvember 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×