Lýsa vantrausti á yfirstjórn lögreglunnar 24. mars 2010 06:00 Valfrjáls vinnutími, sem tekinn var upp hjá LRH í sumar með öðrum skipulagsbreytingum, hefur valdið mikilli óánægju meðal lögreglumanna.
Formaður Lögreglufélags Reykjavíkur, Arinbjörn Snorrason, hefur lýst því yfir að hann muni ekki sitja fleiri fundi með yfirstjórn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eins og hún er skipuð í dag. Þetta kom fram á fjölmennum félagsfundi LR í fyrradag. „Það er alvarlegur trúnaðarbrestur milli yfirstjórnarinnar og lögreglumanna,“ segir Arinbjörn. „Hún nýtur ekki trausts þeirra, þar sem hún hefur ekki staðið við orð sín gagnvart þeim. Stjórn LR hefur ítrekað fengið ábendingar frá félagsmönnum um að draga sig út úr öllum samskiptum við yfirstjórnina. Svo er þessi agi í stjórnun, sem mönnum ekki hugnast. Þeim er haldið á tánum og gefið í skyn að standi þeir sig ekki verði þeim skipt út fyrir aðra. Við erum allt of fá, með allt of mörg verkefni og verðum samt að klára þau. Þetta snýst um að embættið líti vel út út á við,“ segir hann og bætir við að stjórnunarhættir yfirstjórnarinnar hafi byggt upp spennu sem komi fram í auknum veikindum. Arinbjörn gagnrýnir nýtt vaktafyrirkomulag lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu sem hann segir lögreglumenn mjög óánægða með. Eftir að það var tekið upp hafi ítrekað komið fyrir að brotið hafi verið samkomulag lögregluembættisins við lögreglufélagið um lágmarksmönnun á vakt. Félagið ætli að leita til lögfræðinga vegna þess brots. Spurður um í hverju yfirstjórnin hafi ekki staðið við orð sín nefnir Arinbjörn nýlegar ráðningar lögreglumanna. Hann segir lögreglustjóra hafa lýst því yfir að lausráðnir starfsmenn gengju fyrir. Reyndin hefði orðið sú að fjórir lausráðnir lögreglumenn hefðu ekki fengið ráðningu. jss@frettabladid.is
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Fleiri fréttir Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Sjá meira