Læknar samþykkja að fresta hækkun 3. apríl 2010 03:15 Læknar Sjálfstætt starfandi sérfræðilæknar fá um 400 þúsund heimsóknir á ári, en heilsugæslan fær 300 þúsund.
Félagsmenn í Læknafélagi Reykjavíkur hafa samþykkt að fresta umsaminni hækkun á einingaverði í gjaldskrám sjálfstætt starfandi lækna. Hækkunin átti að taka gildi 1. apríl, en var frestað til 1. júní næstkomandi. „Við viljum reyna að nota tímann þangað til í júní til að ræða við heilbrigðisráðherra um framhaldið á þessari þjónustu,“ segir Sigurður Böðvarsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hafði lagt að sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum að fresta 1,9 prósenta hækkun á einingaverðinu, og samþykktu félagsmenn í Læknafélagi Reykjavíkur það á fundi á mánudag. Sigurður segir boðaðan niðurskurð ráðuneytisins þýða á bilinu 30 til 40 prósenta niðurskurð hjá sjálfstætt starfandi læknum. Gangi það eftir muni þessi rekstur líða undir lok. Það er mikið áhyggjuefni fyrir sjúklinga sem treysta á þá þjónustu sem læknarnir veita, segir Sigurður. Um 400 þúsund heimsóknir eru skráðar hjá sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum á ári, um 100 þúsund fleiri en hjá heilsugæslustöðvum. Læknar eru tilbúnir til að taka á sig sinn skerf af þeim niðurskurði sem fara þarf í, segir Sigurður. Um ár er síðan sérfræðilæknar gáfu eftir um tíu prósenta hækkun á einingarverði. - bj
Mest lesið Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Innlent „Erum að horfa á eitthvað betra en vopnahlé“ Erlent Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Erlent Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Erlent Skjálfti fannst í Hveragerði Innlent Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Erlent Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Innlent Hefur leit að nýjum saksóknara Innlent Fleiri fréttir Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Sjá meira